Category: Minningargreinar

Sóley Stefánsdóttir – minning

Viðhorf Þú segir: Á hverjum degistyttist tíminnsem við eigum eftirSkref fyrir skreffærumst við nærdauðanum – en ég þræði daganaeins og skínandi perlurupp á óslitinnsilfurþráðinn Á hverju kvöldihvísla ég glöðút í myrkrið:Enn hefur líf mittlengst um heilan dag.Vilborg Dagbjartsdóttir (Síðdegi, 2010) Þá hefur hún Sóley okkar þrætt síðustu perluna upp á silfurþráðinn sinn. Eftir situr stórfjölskyldan …

Gulli málari – minning

Þá er hann Gulli málari farinn á vit Ásu sinnar. Gulla finnst mér ég hafi þekkt alla tíð. Hann var jú pabbi hennar Ástu B. vinkonu minnar og Óskars bróður hennar. Gulli bjó samt ekki með þeim systkinum á Álfhólsveginum þar sem við Ásta og Óskar vorum nágrannar. Hann var engu að síður alltaf nálægur. Mætti á alla fótboltaleiki sem Ásta spilaði og háa röddin hans fór ekki framhjá neinum sem fylgdist með.

Hinrik Pétursson Lárusson 1932-2023

Þau voru þung sporin þegar við systkinin fylgdum pabba síðasta spölinn, en þó var okkur létt. Óminnið sem hann hafði barist við síðustu misseri og versnandi heilsa var orðið óbærilegt, bæði fyrir Hinnar Lár og okkur sem stóðum honum næst. Hinni Lár var stór maður á svo margan hátt, hann var það kannski ekki í …

Bimba frænka – minning

Ingibjörg Pétursdóttir, Bimba frænka, var uppáhalds frænka mín af öllum í veröldinni. Það sem ég var montin af því að vera nafna hennar. Hún var fyrirmyndin mín í góðum siðum og ung stúlka dreymdi mig um að ferðast til ókunnra landa og fjarlægra heimsálfa og vera eins og Bimba frænka. Bimba var svo óendanlega fyndin …

Einar Ragnar Sumarliðason – minning

Að sitja hér að morgni útfarardags Einars Sumarliðasonar og reyna að festa hugsanir mínar á blað er nánast ómögulegt. Þau eru nefnilega svo mörg árin þar sem spor okkar Einars lágu saman og Breiðablik var miðpunkturinn okkar. Ég man fyrst eftir Einari í sumarhúsinu sem komið hafði verið niður við gervigrasvöllinn og þjónaði sem félagsheimili …

Dómarinn Stefán Karl

Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi annarra knattspyrnuliða en Breiðabliks. Jú Arsenal hefur stundum staðið hjarta mínu nær, þó það félag nálgist ekki þá ástríðu sem ég hef fyrir Blikunum. En maður verður víst að halda með einhverju liðið í Englandi og þar valdi ég Arsenal. Þeir byrja a.m.k. hvert tímabil á toppnum. Hér …

Atli Heiðar Þórsson – Minning

Farðu í friði góði vinur þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur aftur hittumst við á ný. (Magnús Eiríksson)  Atli Þórsson var vinur minn. Hann var vandaður maður og fór ekki í manngreinarálit. Hann var ekki maður margra orða þó hann hafi sannarlega haft skarpar og skýrar skoðanir á hlutunum og …

Í minningu vinar – Friðjón Fannar Hermannsson

Í hverfulleika lífsins, hvergi finn ég skjól hamingjan er ekki öllum gefin. Því hugsa ég um ljósið er leggst ég í mitt ból hvort lýsi það að morgni, þar er efinn. Í dag fékk ég fréttir af óvæntu fráfalli vinar míns Friðjóns Fannars Hermannssonar. Hann var einn af strákunum mínum í Ekkó. Fjörmikill drengur, stuttur …