Spínatdýfa Siffu
Sigfríður vinkona mín bauð uppá þessa geggjuðu dýfu í afmælisveislunni sinni þann 7. desember sl. Ég varð að sníkja uppskrift og hér er hún!
- 1 poki ferskt spínat, saxað (ekki maukað)
- 1 ds. vatnshnetur, saxaðar
- 1 ds. sýrður rjómi (18%)
- majónes, smá sletta
- púrrulaukssúpa 1/2 pakki jafnvel meira.
Öllu blandað saman og borið fram með góðu brauði. Geggjað!