Grafið lambafile

Lambafile, fituhreinsað og snyrt

Í grafningslöginn eru notuð eftirtalin hráefni, ca. 1 msk. af hverri kryddjurt fyrir hvert file:

  • Steinselja
  • Basilika
  • Kóreander
  • Dill
  • Balsamic syróp
  • Púðursykur
  • Salt
  • Pipar

Steinselja, basilika, dill og kóreander er saxað smátt og sett í skál.
Púðursykurinn er leystur upp í vel volgu vatni.
Ca. 1 bolli af balsamic syrópi settur útí
Pipar – dash af honum og vel af salti (það þarf að vera VEL af salti)

Þetta er smakkað til og þegar þér líkar bragðið þá er kjötið sett í skálina og velt vel og vandlega uppúr kryddleginum. Gott er að nudda file-ið þannig að lögurinn sitji vel á kjötinu.

Því næst er hverju file vafið þétt inní plastfilmu og lokað vel fyrir.

Kjötið er látið sanda inní ísskáp í um það bil sólarhring, lengri tíma þarf eftir því sem file-ið er stærra. Því næst er kjötið sett í frysti. Sama dag og bera á kjötið fram er það tekið út úr frystinum og sneitt meðan það er enn örlítið frost í því, þannig næst að sneiða það í þynnri sneiðar.

Mjög gott er að bera kjötið fram með snittubrauði, sem búið er að pensla með ólífuolíu og baka smá stund inní ofni, fíkjukonfit og ferskum bláberjum!

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu