Lamb Vindaloo
- 1 kg. lambakjöt skorið í um 4 cm bita
- 100 ml. Rauðvínsedik
- 2 msk sólblómaolía
- 2 tsk salt
- 500 gr kartöflur, flysjaðar og skornar í um 2,5 cm bita
Sósan
- 125 ml. Sólblómaolía
- 4 laukar, 3 smátt skornir og 1 sneyddur
- 6 hvítlauksrif, gróft skorin
- 3 rauð chilli, skorin gróft
- 25 gr. Engifer, flysjuð og gróft skorin
- 1 msk. Sinneps duft
- 1 msk. Cumin
- 1 msk. Kóríander (krydd)
- 1 msk. Paprika
- 2 tsk. Túrmerik
- 2 tsk. Cayenne pipar
- 1 tsk cinnamon … kanill
- 2 tsk salt
- 2 lárviðarlauf
Blanda saman edikinu og olíunni í skál þar til það hefur blandast vel. Bæta við lambinu og leyfa því að marinerast í a.m.k. 2 klst.
Hita ofninn í 180 gráður
Fyrir sósuna á að hita þrjár matskeiðar af olíunni í steikarpönnu og steikja sneidda laukinn á miðlungs hita í um 15 mínútur þar til hann er létt brúnaður
Setja skorna laukinn, hvítlaukinn, chilli, engifer, sinnepsduftið, cumin, kóríander, papriku túrmerik, cayanne pipar og kanil í matvinnsluvél og blanda þar til það hefur maukast saman.
Bæta maukinu saman við laukinn, bæta við tveimur matskeiðum af olíu og elda í um 5 mínútur eða þar til þetta fer að taka lit. Taka af pönnunni og setja í pott.
Taka lambið úr marineringunni en geyma löginn. Setja pönnuna á hitann aftur og bæta við tveimur matskeiðum af olíunni. Steikja lambið í nokkrum skömmtum við miðlungshita, snúa öðru hvoru þar til þetta er létt brúnað. Bæta við meiri olíu ef þarf. Setja lambið í pottinn.
Hella afganginum af marineringunni í opttinn, bæta við salti og lárviðarlaufum og láta suðuna koma upp. Setja bökunarpappír ofaní pottinn og láta malla í um 45 mínútur í ofninum.
Taka pottinn úr ofninum og hræra kartöflunum í blönduna. Setja lokið aftur á og bökunarpappírinn og elda áfram í um klukkustund þar til lambið og kartöflurnar eru mjög mjúkar. Smakka til með salti.
Bera fram með jógúrt, kóríander, hrísgrjónum og heitu naan brauði.