Brokkolípestó
- 1 stórt brokkolí
- 40 g parmesanostur
- 1 búnt fersk basilika
- 1/2 sítróna, pressaður safi
- 1/2 bolli heslihnetur frá Himneskri Hollustu
- 2 hvítlauksgeirar
- 1/2 bolli extra jómfrúar ólífuolía frá Himneskri Hollustu
- 2 msk vatn
- Sjávarsalt og svartur pipar frá Himneskri Hollustu
Öllu blandað saman í matvinnsluvél.
Smakkað til, ólífuolíu, vatni, salti og pipar bætt við eftir smekk.
Dásamlegt með pasta, salati, á samlokur, kjúklinga- og grænmetisvefjur.