Andabringur með pistasium og trönuberjum

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson – uppskrift af Stöð 2

Andabringur með pistasíum og trönuberjum – fyrir 4

  • 800 g andabringur
  • 1 msk. af fínt rifnum lime berki
  • Olía til steikingar
  • Sjávarsalt
  • Hvítur pipar úr kvörn
  • 3 msk. pistasíur
  • 3 msk. trönuber
  • 1 lime
  • 2 msk. graslaukur fínt skorinn

Setjið andabringurna á miðlungsheita pönnu með fituhliðina fyrst niður og steikið í ca 4 mín á fituhliðinni. Snúið bringunum við og steikið í ca 2 mín á hinni hliðinni. Kryddið með salti og pipar. Setjið bringurnar inn í 80 gráðu heitan ofninn í 40 mínútur. Setjið pistasíurnar á pönnuna sem að andabringurnar voru steiktar á og eldið þær upp úr andafitunni í ca 3 mín eða þar til þær verða stökkar. Bætið trönuberjunum út á pönnuna og eldið með pistasíunum í 1 mín. Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Gott er að setja smá fínt skorinn graslauk líka með.

Steiktir shitakesveppir, spínat og perur

  • 2 box shitakesveppir
  • 2 stk. pera
  • 2 msk. fínt skorin skallotlaukur
  • 2 msk. sojasósa
  • 1 msk. smjör
  • ólífuolía til steikingar
  • Sjávarsalt
  • Svartur pipar úr kvörn

Skerið sveppina í fernt og setjið á heita pönnu með ólífuolíu og smá smjöri. Steikið sveppina þar til þeir eru oðnir mjúkir. Skrælið og skerið peruna í stóra bita og bætið út á pönnuna ásamt skallotlauknum og sojasósunni. Kryddið með salti og pipar ef þurfa þykir.

Sætkartöflumús með hvítlauk og engifer

  • 2 stk. bakaðar sætar kartöflur (bakaðar í 90 mín við 200 gráður)
  • 2 msk. fínt rifinn ferskur engifer
  • 1 hvítlauksgeiri (fínt rifinn)
  • 200 ml líter rjómi
  • ½ poki spínat

Sjóðið upp á rjómanum og bætið sætu kartöflunum svo út í. Bætið svo hvítlauknum og engifernum út í og smakkið svo músina til með salti. Rétt áður en músin er borin fram er spínatinu bætt út í pottinn og blandað saman við músina.

Lime hunangssósa

  • 3 stk. laukar (skrældur og gróft skorinn)
  • 6 stk. hvítlauksgeirar
  • 1 stk. lárviðarlauf
  • 2 stk. stjörnuanis
  • 4 sellerístilkar (gróft skornir)
  • ½ flaska hvítvín
  • 50 ml sojasósa
  • 50 ml hunang
  • 1 líter kjúklingasoð
  • 100 g smjör skorið í teninga
  • safi úr 2 lime
  • ólífuolía til steikingar
  • sjávarsalt
  • svartur pipar úr kvörn

Hitið stóran pott með olíu og steikið laukinn, hvítlaukinn, og selleríið þar til allt er orðið gullin brúnt. Bætið lárviðarlaufinu og stjörnuanisnum út í og hellið því næst sojasósunni út í og látið hana sjóða niður um helming. Bætið svo hvítvíninu út í og látið það sjóða niður um helming líka. Setjið svo hunangið, kjúklingasoðið og látið sjóða við vægan hita í 1 klst. Sigtið soðið yfir í annan pott og látið það sjóða þar til það fer að þykkna. Bætið smjörinu smám saman út í og smakkið til með saltiinu og limesafanum og meira hunangi ef þurfa þykir.

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu