#MeToo kvenna í tækni- upplýsinga og hugbúnaðargeira

Hér að aftan eru frásagnir kvenna í tækniog
hugbúnaðariðnaði
1. Ég sagði starfi mínu lausu hjá síðasta fyrirtæki sem ég vann hjá eftir að hafa heyrt af því
að minn næsti yfirmaður á að hafa áreitt tvær konur í fyrirtækinu kynferðislega. Þær höfðu
báðar kvartað undan honum en ekkert var að gert nema segja honum að hætta að drekka
með starfsfólkinu. Hann sem sagt hafði í bæði skiptin verið vel í glasi þegar þetta á að
hafa komið fyrir. Ég hafði ekki sjálf beinlínis lent í honum en hann horfði venjulega fyrst á
brjóstin á manni og svo framan í mann og svo aftur niður á brjóstin meðan maður var að
tala við hann. Hann er oft mjög grófur í máli í glasi þannig ég trúi vel að þessar
samstarfskonur mínar hafi verið að segja satt en ekki skálda eitthvað út í loftið. Á seinustu
árshátíð fyrirtækisins fylgdist ég með honum en hann var greinilega var um sig en var
samt sem áður að drekka. Mér skilst að það hafi ekkert verið gert í því og hann drekki
iðulega nú með samstarfsmönnum þegar það er gleðskapur hjá fyrirtækinu. Ég sem hafði
starfað í 9 ár í fyrirtækinu og alltaf liðið þar vel var farið að líða ansi illa eftir að ég heyrði
af þessu [með] áreitnina frá honum. En honum var ekki sagt upp. Hann var talinn of
mikilvægur. Mikilvægari en ég og mikilvægari en þessar tvær samstarfskonur mínar.
2. Ég starfaði hjá hressu fyrirtæki og þurfti heilmikið að eiga við ákveðinn markalausan
einstakling sem þrátt
fyrir að vera vænsta skinn að mörgu leiti vissi
alveg hvað hann
var að gera með því að beita valdi sínu sem yfirmaður, bæði sem slíkur og líka
fjárhagslega. Fjárhagslegt ofbeldi er mun algengara en marga grunar nefnilega. Og þessi
maður beitti því mjög mikið.
Þegar ég hafði starfað hjá fyrirtækinu í ca. 2 mánuði fann ég að ég var farin að óttast
hvað hann myndi ganga langt. Það var starfsmannapartý framundan sem var haldið út á
landi og þegar ég hugleiddi að hætta við að fara af ótta við hann þá
ákvað ég að tala við
starfsfólk mannauðsdeildarinnar og formlega tilkynna þessa ótæku hegðun.
Viðbrögðin sem ég fékk var að hann væri tiltölulega nýskilinn og ætti soldið erfitt með sig
og sína drykkju þess vegna. Það væri gott ef ég gæti sýnt því skilning bara…
Ég hélt nú síður!
Ég pantaði fund með viðkomandi og lét þessa tvo “mannauðsstjóra” vera viðstödd þegar
ég lét hann lofa því að hætta að haga sér svona. Og biðja mig afsökunar.
Það dugði þó ekki til og
þurfti ég (og margar aðrar konur hjá fyrirtækinu) að eiga við
hann í nokkur ár til viðbótar. Og það gekk svo sannarlega á ýmsu. Ég er með langan lista
af allskyns sjúkri hegðun af hans hálfu. Þetta var að ganga fram af mér á tímabili.
Þegar fyrirtækið réði svo loksins almennilegan mannauðstjóra sem var með viðbrögð og
verkferli í svona aðstæðum á hreinu var hann látinn fara. Fyrst í veikindaleyfi og markvisst
látinn vinna í sínum málum og taka ábyrgð á gjörðum sínum. Og svo var hann látinn fara
alveg.
Þetta sýnir mér og gefur mér trú á því hvað góðir ferlar og verkfæri til að díla við svona
(allt of algeng) vandamál inn á vinnustöðum. Ég vona að þessi bylting eigi eftir að skila
því af sér inn á vinnustaði.
Ég veit að hún á eftir að gera það. Og margt margt annað.
7
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
3. Við vorum tvær samstarfskonur á Hrafnaþingi Nýherja fyrir um 89
àrum. Vorum í lyftunni
á leið niður með háttsettum manni í fyrirtækinu. Maðurinn starir á brjóstinn á mér (í
lyftunni eru einnig veitingar á hjólaborði) og
hann var byrjaður að gantast tók
svo
skyndilega upp vinberjaklasa (23
vínber) setti þau niður á milli brjóstana á mér án þess
að snerta mig. Svo gerði hann sig líklegan til að sækja þau; þá hafði ég hraðari hendur
tók þau upp og setti þau á borðið. Ég man ekki hvað hann sagði eftir það. Við gengum út
úr lyftunni saman; en við samstarfskonurnar stoppuðum fljótlega horfðum á hvor aðra og
ræddum þetta eitthvað en ég hugsaði þetta lítið eftir það. Það var eitthvað svo langt frá
okkur að gera eitthvað í þessu… ég trúi því að í dag myndi ég ekki lata þetta viðgangast!
4. Rétt fyrir aldamótin fór hresst og ofursvalt hugbúnaðarfyrirtæki á árshátíð til stórborgar og
skemmti fólk sér þar konunglega við mat og drykk. Svo fóru allir saman á strippstað því
það er greinilega það sem menn gera í fyrirtækjaferðum í útlöndum. Mér hefur sjaldan
liðið jafn illa og þegar ég gékk inn og mætti einum stjórnendanna með vændiskonUR upp
á sitthvorn arminn skælbrosandi á leiðinni út.
5. Ég var að vinna sem aðstoðarritstjóri á vefmiðli um aldamótin. Stemmningin var frekar súr
á þessum tíma og var kannski undanfari menningarinnar sem síðan var stór þáttur í
Hruninu; hraðinn, siðleysið og græðgin voru allsráðandi. Grafísku hönnuðurnir voru allir
ungir strákar sem fengu lítið aðhald og unnu mikið. Einu sinni sem oftar heyrast mikil
hlátrasköll úr horninu hjá þeim. Ég labba yfir og sé mér til skelfingar á skjánum hjá þeim
mynd í photoshop þar sem búið er að skeyta andlitsmynd af mér á klámmynd af annarri
konu. Ég var auðvitað ekkert eina konan sem þeir áttu svona mynd af heldur var búið að
gera þetta við þær fáu konur sem unnu þarna. Þetta fannst þessum strákum og fleiri
körlum á staðnum hrikalega fyndið. Þeir voru í yfirburðastöðu í hlátrasköllunum og
samstöðunni. Ég var lengi að grafa þessa sögu upp því hún triggerar mig. Ég man hvað
ég fann til mikils vanmáttar á þessu augnabliki – ég varð í alvöru máttlaus af ótta og vissi
ekki hvernig ég gæti komist út úr þessu. Mér fannst ég beitt ofbeldi. Þeir höfðu vald til að
nota mig og aðrar konur sér til niðurlægingar og skemmtunar svona án þess að þurfa
nokkurn tímann að taka raunverulegum afleiðingum af því. Þeir gátu bara gert þetta. Það
var svigrúm í menningunni til þess og þeir bara gerðu það þessir strákar. Og karlarnir
hlógu.
6. Hjá einu fyrirtæki sem ég vann hjá snéri maður við á leið út um dyrnar og gékk á eftir mér
“vildi bara tékka hver væri með þennan rass”. Ég sagðist vera búin að sitja á þessu allan
tímann. Hvað er annað hægt að segja?
Stjórnarmaður sama fyrirtækis rakst á mig úti í smók á árshátíðinni og bað mig um eld.
Innan við 2 mínútum var hann búinn að bjóða mér með upp á hótel í tveggja manna partý.
Á milli rétta á árshátíðinni. Ég náði að snúa mig út úr þessu, eitthvað með að taka djobbið
mitt og að búa til pening alvarlega en fokk hvað mér leið illa á leiðinni til baka. Ef hann
myndi nú nafnið mitt og þetta hefði afleiðingar.
8
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
7. Fyrst þegar ég byrjaði í bransanum brynjaði ég mig, ignoraði og var oft í afneitun fyrir t.d
niðurlægjandi orðum, klipi í rassinn eða að vera gripin á loft…og [fékk] óviðeigandi tilboð
og óumbeðin ráð t.d af hverju og hvernig ég ætti að nýta mér kvenleika minn eða haga
mér meira eins og karl til að ná meiri árangri í starfi. Ég hef verið útilokuð og lent á gler
veggnum og skírskotun í kyn þegar ég hafði náð frábærum árangri í starfi, að velvild
yfirmanns hefði eitthvað að gera með útlit mitt. Ég hef líka átt samtöl þar sem ég hef verið
beðin einlægt fyrirgefningar á óviðeigandi hegðun.
8. Ég átti tvö börn á tveimur árum (lesist fór ekki mikið út með fólki eldra en 3 ára í dágóðan
tíma) og var búin að vinna á nýjum stað í hálft ár. Gekk svona glimrandi vel að teymið mitt
vann verðlaun fyrir verkefni.
Þegar leið á fagnaðarkvöldið sneri samstarfmaður minn sér að sér og tjáði mér það að
hann langaði svo að ríða mér. Ég reyndi að hlæja það burt þúst,
gott grín, en hann hélt
áfram að segja þetta. „Mig langar til að ríða þér. Mig langar til að ríða þér.“
Ég man ekki alveg hvernig ég brást við á endanum en þetta eyðilagði mig gjörsamlega.
Ég hafði hreinlega aldrei náð svona góðu vinnusambandi við manneskju áður og við
gerðum flotta hluti saman, og svo fyrsta skipti sem ég fer út í einhver 34
ár gerist þetta.
Ég fór heim í rúst. Fékk SMS frá honum næsta morgun þar sem hann baðst afsökunar en
ég sökk í þunglyndi eftir þetta. Gat aldrei unnið vel með honum aftur og svo næsta ár
þegar hann danglaði í rassinn á mér í öðru staffa djammi þá kvartaði ég undan honum.
Það skilaði því miður engu.
9. Ég á þó nokkuð margar sögur síðan ég hóf nám í mínum bransa. Ég vann með skólanum
á vinnustað þar sem voru nær eingöngu menn. Ég var þá grænmetisæta. Ekki að það hafi
verið merkilegt nema að kollegi minn fann sig knúinn til þess að segja að “allar konur sem
eru straight og grænmetisætur taka sér einhverntíman kjöt til munns”….Hvernig á maður
eiginlega að bregðast við svona? Í skólanum var ég í grúppu þar sem ég var eina konan.
Ég var ekki bara eina konan heldur var ég líka elst og átti tvö börn. Ég var lögð í einelti af
grúppunni minni. Þeir töluðu ekki við mig alla önnina og hunsuðu mig algjörlega en þeir
leyfðu sér að tala um hvað allar stelpurnar í bekknum væri ljótar nema ein. Félagi þeirra
kom eitt sinn inní herbergið og talaði um mig (og ekki við mig) á meðan ég var í
herberginu og kallaði mig MILF….Ég tók hann síðar á eintal og gerði honum grein fyrir að
þetta væri ekki í lagi og að þetta væri ekki hrós (eins og hann hélt að þetta væri).
10. Þegar ég kom út á vinnumarkaðinn í mitt fyrsta starf eftir útskrift sem tæknifræðingur var
ég 29 ára. Það skiftir máli vegna sögunnar að ég er ljóshærð. Nýji kollegi minn sem var
rúmum tuttugu árum eldri en ég var einstæður faðir og hafði verið það í 8 ár og ekki verið
við kvenmann kenndur allan þann tíma. Hann talaði í sífellu um 29 ára ljósku með stór
brjóst. Ég reyndi að taka þetta ekki til mín en gekk misvel. Hans hegðun gagnvart konum
var mjög niðrandi svona almennt. Þegar við höfðum unnið saman í 23
ár átti ég enn eitt
samtalið við hann. Samtalið snérist að faginu sem við störfum í en í einni setningu tókst
honum að tala um þetta tiltekna dílemma í vinnunni og hvernig ætti að leysa það faglega
en einhvernveginn tókst honum að nefna háralitinn á mér 3svar og klæðnaðinn minn líka.
9
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
Þarna fékk ég alveg nóg af ruglinu í honum og klagaði hann fyrir áreiti til yfirmanns. Mér
hafði áður verið vísað frá hjá yfirmanni þar sem hann sagði að hann meinti ekkert illt með
þessu og að hann væri bara svona sérstakur. Í þetta sinn þýddu engar svona skýringar,
ég neitaði að vinna með honum framar þar sem hann væri sífellt að tala um útlit mitt. Í
stað þess að fara í hefðbundið ferli í vinnunni þá tók yfirmaður okkar okkur á sáttafund. Í
dag skil ég að það er vegna þess að hann þorði ekki takast á við þetta á réttmætan hátt.
11. Eitt svæsnasta vinnudjammsatvikið
sem ég man eftir var þegar ég var frekar ung, að
stíga mín fyrstu skref í tæknibransanum, fór á eftirvinnudjamm
þar sem við vorum bara
tvær konur sem mættum og svo fullt af körlum, og það kvöld endaði á því að nokkrir
karlkyns vinnufélagar mínir þurftu að fylkja sér utan um mig til að verja mig fyrir
dauðadrukknum karlkyns vinnufélaga sem stóð og öskraði á mig eftir að ég hafði
afþakkað einhver tilboð frá honum: “Ríddu mér helvítis hóran þín” og “þykistu vera of góð
fyrir mig, druslan þín” og fleira álíka huggulegt. Það þurfti að halda honum á meðan ég
forðaði mér heim, algjörlega skelfingu lostin,því mér fannst eins og maðurinn væri
algjörlega stjórnlaus og ég var hreinlega hrædd um að hann myndi ráðast á mig. Það var
svo tekið á því þannig á vinnustaðnum að hann var látinn biðja mig afsökunar og mér
sagt að ef ég sætti mig ekki við afsökunarbeiðnina eða treysti mér ekki til að taka á móti
henni, þá yrði hann látinn fara. Þetta var víst ekki í fyrsta skipti sem viðkomandi áreitti
konur á vinnudjammi en líklega öfgakenndasta atvikið. Mér fannst óþarfi að vera látin
bera ábyrgð á því hvort,maðurinn héldi vinnunni sinni eða ekki. Til að því sé samt haldið
til haga að þá stóðu hinir strákarnir á vinnustaðnum ótrúlega vel með mér og voru
virkilega ósáttir við þessa framkomu og vildu að það yrði tekið almennilega á þessu.
12. Þegar ég byrjaði að skrifa í eina fagtímarit landsins um tölvumál fóru mér að berast allt frá
furðulegum upp í ógnandi skilaboðum frá karlmönnum í gegnum netið. Allt frá spurningum
um kynferði mitt og meint hatur á karlmönnum yfir í það persónulegasta, nokkrum sinnum
bárust mér ofbeldisfullar hard core klámmyndir þar sem var búið að klippa hausinn á mér
inná myndirnar, skilaboð frá ókunnugum mönnum sem sögðust vita hvar ég ætti
heima(!?!) og í eitt skiptið var mér sent barnaklám af manni sem fannst í lagi að taka þátt í
misnotkun barna til að beita mig andlegu ofbeldi.
13. Mitt er ekkert stórmál en á kaffistofunni þótti einum við hæfi (við vorum bara tvö, ætli hann
hefði leyft sér þetta annars?) að toga í tígóið mitt, ég man ekki hvað hann sagði ég man
bara að ég lýsti því yfir að þetta væri ekki í lagi og ræddi þetta við yfirmann minn (fyrir
framan aðra) og hann var alveg sammála mér en einn gaur tók ekki undir og fór að tala
um að ekkert megi og hvernig á eiginlega að kynnast konum?!
…Sá sami talaði um [síðar] að það væri ekki á hans ábyrgð að ganga úr skugga um að
stelpan sem hann væri að sofa hjá vildi það.
14. Sælar, ég hef eins og margar lent í ýmsu misjöfnu en ætla að deila með ykkur því sem
mér þótti hvað svæsnast:
Ég var í vinnuferð erlendis ásamt fjölda samstarfsaðila og viðskiptavina og eitt kvöldið
10
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
sátum við kollegi minn ásamt fulltrúa eins viðskiptavinarins (báðir karlmenn) á hótelbar,
sötruðum drykki og spjölluðum eftir kvöldverð. Spjallið færðist út í umræðu um
persónuhagi eins og gengur og ég deildi því m.a. að ég ætti tvo drengi með sérþarfir og
sagði frá því starfi sem ég væri að vinna í þágu þess málefnis utan vinnu.
Viðskiptavininum þótti greinilega mikið til þessa koma og var óspar á hrósið hvað ég væri
öflug og flott kona. Allt í góðu og innan eðlilegra marka. Fljótlega fór hann þó að koma
með óþægilegar athugasemdir á borð við “þú ert svo kynþokkafull” og “kona eins og þú
ert örugglega frábær í rúminu”. Kollega mínum blöskraði þetta og þegar ég brá mér á
salernið ákvað hann að segja við manninn að þetta væri nú orðið frekar óviðeigandi. Það
dugði þó ekki til og þessar athugasemdir héldu áfram að dúkka upp inn á milli annars
mjög saklausrar umræðu. Að endingu spurði maðurinn svona
hálfpartinn í gríni og
hálfpartinn af alvöru hvort
ég vildi ekki bara koma með honum upp á hótelherbergi.
Skömmu síðar yfirgáfum við kollegi minn svæðið undir því yfirskyni að það væri langur
dagur framundan. Mér var eðlilega nokkuð misboðið en brást samt við þessu öllu með því
að hlægja bara og gera lítið úr þessu en hefur æ síðan þótt óþægilegt að hitta þennan
mann. Ég var hvað svekktust að hafa bara kóað með þessu í stað þess að segja honum
til syndanna.
15. Ég hélt einu sinni að ég hefði ekki lent í neinni kynbundinni mismunun, né áreiti, en kemur
í ljós þegar ég fer að skoða þetta að þetta er útum allt og ég var bara mjög dugleg í að
bægja hugsuninni frá. Þegar ég var yngri og var með einhverjar skoðanir: “hvað er
stelpan að rífa sig?” Svo breyttist þetta í “hvað er kerlingin að rífa sig?”. Svo gleymist
fáránlega oft að tæknihópar séu af báðum kynjum og talað á fundum og póstum í
karlkyni, veit að í mörgum tilvikum er það algjörlega óvart, en í sumum tilvikum er það
bara alls ekki óvart. Hef líka lent í kynferðislegri áreitni og brást mjög illa við því og sagði
manninum til syndanna en dreif mig svo bara heim af því að mér fannst þetta svo
ömurlegt og hef farið í gegnum þetta atvik margsinnis í huganum. Ég hef eiginlega alla tíð
verið vör um mig og gert í því að tala um manninn minn í svona social samhengi sem
einhvers konar varnarviðbrögð. Við konur erum duglegar í því að vara hvor aðra við
“dónakarlinum” í fyrirtækinu og það er því miður yfirleitt einn eða tveir í flestum
fyrirtækjum sem ég hef kynnst.
16. Ég hef lent í því að vera stjórnandi í fyrirtæki og fengið kvörtun frá starfsmanni um
kynferðislega áreitni frá öðrum starfsmanni á [starfsmanna]djammi en fengið þær
leiðbeiningar úr stéttarfélagi að ef atvikið gerðist utan vinnutíma ætti vinnustaðurinn ekki
að skipta sér að því. Ég brást kolrangt við og sé mjög mikið eftir því. Var sjálf skíthrædd
við að tækla þetta mál. Í einu fyrirtæki sem ég vann hjá var kvartað ítrekað yfir tveimur
starfsmönnum sem báðir sátu þá í framkvæmdastjórn og ekkert var að gert, þeir sátu sem
fastast. Ég vona að þessi bylting gefi okkur amk það að til verði ferli fyrir svona mál í
öllum fyrirtækjum sem stjórnendur geta stutt sig við. En meðvirkni er út um allt vegna
þessarra mála og fólk tilbúið að setja hluti ofan í skúffu af því að þeir óþægilegir.
11
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
17. Ætla nú að byrja á að lýsa yfir ánægju minni með þennan hóp því ég hef hugsað mikið
um stöðuna á þessum málum í okkar bransa sl. vikur. Held að það séu svo ótal mörg
dæmi sem við erum að burðast með hver í sínu horni. Lang flestir forritarar og karlmenn
sem ég hef unnið mig sl. 13 ára hafa verið frábærir en því miður eru nokkur skemmd epli
þarna inn á milli sem hafa gert suma daga erfiðari. Þegar ég var nýbyrjuð að vinna í
þessum tæknigeira og var að koma nýjum vef í loftið og þurfti því mikið að leita til
rekstrarmanna. Það var mikil pressa á að koma vefnum í loftið og ég fer og spyr
rekstrarmanninn um hvernig staðan sé á verkinu og hann svarar með einhverjum stælum.
Ég endurtek spurninguna og segi að það liggi á þessu og því þurfi ég svör. Þá hallar hann
sér glottandi aftur á bak í stólnum og segir hátt og snjallt ,,
er mín bara með sand í dag”
Ég hafði aldrei heyrt þetta orðatiltæki og sýndi engin viðbrögð en allir strákarnir í kringum
hann skellihlógu. Honum fannst ennþá fyndnara að ég skildi ekki fatta þetta, sá það
greinilega á andlitinu á mér hélt svo bara áfram. ,,Þarft þú ekki bara að fara að fá það
almennilega!” Mér leið eins og algjörum skít þarna á gólfinu, roðnaði og blánaði, og augun
fylltust af tárum og ég flúði inn á klósett. Mér leið illa yfir þessu lengi á eftir og reyndi að
ræða þetta á vinnustaðnum en þá var alltaf sama svarið; Þetta er bara hans húmor. Þú
verður að geta tekið gríni ef þú ætlar að vinna í þessum bransa. Þetta var ákveðin
eldskírn og þótt ég hafi heyrt ýmislegt síðan þessi orð féllu fyrir 13 árum þá eru þessi orð
sem hafa sært mest og látið mig upplifa mig mest niðurlægða sem konu í þessum
tæknibransa.
18. Ég starfaði í hressu og skemmtilegu tæknifyrirtæki þar sem starfsmenn brugðu sér
gjarnan saman á barinn. Yfirmaður minn var gjarnan með og fór fljótlega að sýna mér
óeðlilega athygli, hringja í mig seint að kvöldi og senda mér skilaboð. Þessa hegðun sýndi
hann mér og mörgum öðrum konum sem þarna unnu. Þetta var alkunna án þess að
stjórnendum þætti tilefni til að grípa inn í. Sjálfri datt mér ekki í hug að gera athugasemdir
enda var svo “frábær mórall” þarna. Þetta rifjast upp fyrir mér núna í #metoo bylgjunni og
ég fatta hvað þessi menning er óeðlileg.
19. Einn undirmanna minna kallaði mig Spena…því ég er víst með svo stór brjóst. Ég hló bara
af því svona til að vera ekki með vesen…
Svo áttu margir menn í erfiðleikum með að tala við kvenmann um svona tæknimál, hvað
þá að ég væri yfirmaðurinn. Vann sem hópstjóri hjá netþjónustufyrirtæki í kring um árið
2000.
20. Ég var að vona að þessi geiri væri skárri en þeir sem hefur verið fjallað um. Ég hef
nefnilega alveg sloppið við áreiti, mismunun og niðurlægingu í öllum þeim fyrirtækjum
sem ég hef starfað hjá sem forritari með námi eða sem verkfræðingur og þótt ég metin að
verðleikum. Þetta eru 13 ár á Íslandi og í Danmörku, 45
fyrirtæki. Svo hef ég verið minn
eigin herra í 7 ár. Og nú er ég að sjálfsögðu bara að tala um mjög þrönga skilgreiningu ,,í
tæknistarfi” en hef lent í áreiti annarsstaðar.
12
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
21. Ég hef lent í kynferðislegri áreitni á hverjum einasta vinnustað sem ég hef unnið á. Frá því
ég var 16 ára. Endalausar athugasemdir um útlit mitt, óvelkomnar snertingar, óviðeigandi
einkaskilaboð, sagt að brosa meira og oftar, ógeðfelld regluleg nafnlaus sms (komst síðar
að þau voru frá samstarfsfélaga), kölluð öfgafeminísti þegar ég geri kröfur um sömu
virðingu og framkomu og karlmenn fá, kann ekki að taka djóki, gerð krafa um að ég svari
fyrir alla feminíska umræðu í fjölmiðlum, gerð að ritara á fundum, mikil umræða ef ég
mæti á sléttbotna skóm, “vertu harðari”, “taktu meira pláss”, gerðu meira svona eða
hinsegin (lesist: vertu meira eins og karlmaður), kynferðislegt tal í kringum mig og
sérstaklega um typpi “ég er svo spenntur fyrir þessu verkefni að ég er með hann
beinstífan” osfrv.
22. Á fyrsta degi á einum vinnustað spurði yfirmaður minn samstarfsfélaga minn hvort ég
væri komin í runkminnið hjá honum, sami yfirmaður bar samstarfsfélaga mína um að
senda ekki innanhúsbrandara á mig því ég gæti ekki tekið þeim. Keyrði yfirmann milli
fundarstaða og benti honum á að hann gæti fært bílsætið aftar (var framalega útaf
barnabílstól), hann spurði hvort hann væri svona feitur, ég sagði nei og þá spurði hann
hvort ég væri að meina að hann væri með svona stórt typpi? Eðlilegt?
23. Eftir viku í starfi fór ég að fá skilaboð frá samstarfsfélaga á FB sem dönsuðu öll á línunni
en voru klárt áreiti og létu mér líða illa og hræðast að vinna með honum. Komst svo að
því síðar þegar ég opnaði mig með þetta að hann hafði gert þetta taktkískt við mjög
margar konur innan fyrirtækisins (ef ekki allar) og allar héldum við að við værum sú eina
og hefðum einhvern veginn boðið upp á þetta. Margar höfðu íhugað að hætta, hveru
margar ætli hafi hætt útaf honum?
24. Samstarfsmaður segir við mig á árshátíð að ef ég væri ekki með manninum mínum þá
myndi hann ríða mér. 22 ára á vinnudjammi og mér mun eldri samstarfsmaður sem ég leit
upp til og þurfti að leita mikið til, setti aðra höndina inn á brjóstin á mér og hina undir
buxurnar að aftan, ég fraus. Öll skiptin sem hefur verið gripið fram í fyrir mér, ekki hlustað
á hugmyndir sem ég kem með fyrr en karlmaður segir þær, og í nær hvert einasta skipti
hef ég ekki sagt orð því ég vil ekki vera óþægileg eða loka á starfsframa möguleika. Ég
fagna þessari byltingu og finn að með hverri sögu fæ ég aukinn kraft til að standa með
sjálfri mér!
25. Sælar og takk fyrir þetta framtak. Ég hef lent í því margoft í því að vera kölluð stelpan og
talað við mig eins og ég sé smákrakki á fundum þar sem ég er eina konan, stundum er
þetta gert óviljandi og stundum hefur þetta verið gert viljandi en samt sem áður mjög
þreytandi. Hvað þarf maður að vera orðin gömul til að vera ekki kölluð stelpa? Ég man
svo vel eftir einu atviki þar sem ég var að segja undirmanni mínum til sem var mun eldri
en ég og hann sagði við mig á mjög illkvittnislegan hátt ,,það er nú aldeilis uppi á þér
typpið núna!,, Eins og ég þyrfti að vera með typpi til að segja honum til.
Svo hef ég margoft lent í því að komið sé fram við mig eins og andarmömmuna þar sem
ég var eini kvenmaðurinn á svæðinu og þar af leiðandi voru störf mín ekki tekin jafn
13
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
alvarlega heldur átti ég bara að hugsa um ungana mína s.s. karlana á vinnustaðnum.
Finnst flott að við séum að deila reynslusögum og þessi vitundarvakning er svo þörf og
nauðsynleg! Áfram við
26. “Smotteríið” sem ég hef lent í á mínum stutta ferli:
Það
er gott að hafa þig á skrifstofunni þegar við erum að taka viðtöl við nýja unga
forritara, lokkar þá til að vilja vinna hérna
Yfirmaður minn þegar ég kom inn í fundar herbergi þar sem verið var að taka viðtal við
strák, sem ég átti að taka þátt í: “ X minnir mig alltaf á Míu í múmínálfunum….” ákveðin
ung kona = teiknimynda karakter
25 árum eldri samstarfsmaður sem ég fékk far með frá lestarstöðinni til eins kúnna til að
fara á fund, þegar ég opna bílhurðina segir hann “ það er nú ekki dónalegt að fá að pikka
upp svona sætar stelpur úr lestinni”. Maður sem mér var oft búið að finnast mjög
óþægilegur, kommentaði gjarnan á útlit mitt og klæðnað og segir óviðeigandi “brandara”.
Að það sé ekki talað til mín á fundum, fyrr en eftir “aha mómentið” þegar þeir (yfirleitt bara
karlar á þessum fundum) fatta að ég veit hvað ég er að tala um.
Stjórnar meðlimur í fyrirtækinu sem ég vinn hjá hrútskýrir fyrir mér gagnagrunns
uppsetninguna hjá okkur, eitthvað sem hann hefur ekki einu sinni skoðað en ég vinn með
á hverjum degi. Ég endurtek mig nokkru sinnum þangað til annar samstarfsmaður (KK)
endurtekur það einu sinni, þá gat hann loksins skilið það.
Einn af stofnendum fyrirtækisins hrósar sjálfum sér fyrir hvað þeir hafa ráðið margar
konur og hvað kynjahlutfallið sé jafnt, þó að þetta sé tæknifyrirtæki. Samt situr bara ein
kona í stjórn og engin yfirmaður er kona. Honum fannst síðan óþarf af mér að benda á
það.
Æjj þó að ekkert af þessu sé kannski alvarlegt þá er þetta svo ÞREYTANDI! Að þurfa
velja á milli að gera mál úr hlutunum og stressið sem fylgir því eða hunsa það og láta
svona viðmót viðgangast
27. Ég hef nær allan minn starfsferil unnið í umhverfi þar sem meirihlutinn er karlmenn og
verið svo heppin að vinna með fullt af frábærum körlum og enn frábærari konum. Ég man
ekki eftir neinu kynferðislegu sem ég hef lent í í vinnuaðstæðum á vinnustað, en auðvitað
allskonar á vinnutengdu djammi.
Það hefur aldrei verið yfirmaður eða einhver í valdastöðu yfir mér, en allskonar
samstarfsfólk, með tilboð, þreifingar eða viðreynslur sem ég hef bara afþakkað, og ekki
beint eitthvað sem ég hef tekið nærri mér. Veit ekki hvort það sé vitnisburður um lítinn
alvarleika atvikanna eða bara hvað maður er samdauna og meðvirkur.
Af kynbundinni framkomu á vinnustaðnum sjálfum þá sat ég einu sinni eina konan á fundi
með nokkrum körlum, þar sem einn karlinn skildi ekki ákveðið atriði sem ég gat útskýrt en
14
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
hann vildi ekki hlusta á mig, og hélt áfram að blaðra og tala yfir mig, og hækkaði bara
röddina þegar ég reyndi að útskýra fyrir honum.Það gekk svo langt að ég spurði hann
hreint út, fyrir framan alla, hvort hann vildi frekar halda áfram að heyra í sér segja með
karlaröddinni sinni að hann skildi þetta ekki frekar en mér útskýra það með konuröddinni
minni!
Hann hélt samt áfram þangað til ég snéri mér að yfirmanni okkar og spurði hvort það gæti
hreinlega verið að manninum væri alvara og hvort öllum fyndist þetta í lagi. Yfirmaðurinn
brást við með því að segja ekkert og setja hendur upp í loft eins og hann hefði ekkert um
þetta að segja. Eftir fundinn elti vinnufélaginn mig og þrætti fyrst fyrir að hafa verið
dónalegur en baðst svo afsökunar.
28. Þegar ég las fyrstu póstana frá ykkur hugsaði ég með mér hve heppin ég er að hafa ekki
lent í neinu kynbundnu ofbeldi á vinnustað!
En því fleiri pósta sem ég les því fleiri sögur get ég tengt við. Og átta mig á því að ekki
nóg með að ég hafi oft lent í einhverju, heldur er ég orðin svo samdauna þessari hegðun
að ég er löngu hætt að taka eftir henni. Ég var s.s. búin að gera þessa hegðun socially
acceptable í eigin huga!
Sem forritari hef ég oftast verið eina stelpan í strákahópum. Þegar ég les reynslusögur
ykkar verð ég reið fyrir ykkar hönd en af einhverjum ástæðum hef ég aldrei beint orðið
reið fyrir mína eigin hönd þegar við hefur átt. Mín lausn hefur alltaf verið að reyna að vera
bara meiri strákur, ekki mála mig eða hafa mig til fyrir vinnuna, aldrei vera í einhverju of
þröngu eða of flegnu eða of…..
Þetta er frábært framtak og skiptir máli. Við eigum ekki að leyfa þessu að viðgangast. Við
eigum ekki að afsaka þá sem koma svona fram. Og við eigum ekki að leyfa þessu að
verða socially acceptable!
29. þegar ég var að kenna námskeið í forritun þá hikuðu sumir nemendur (sem voru 90%
karlkyns) ekki við að tala upphátt yfir alla stofuna um rassinn á mér á meðan ég snéri baki
í þá til að taka dæmi uppá töflu. Mín lausn var að vera alltaf í einhverju síðu sem næði
örugglega yfir rassinn. Þeir gátu hinsvegar haldið áfram að vera í gallabuxum og bol!
á álíka námskeiði var einn eldri maður alltaf að rétta upp hönd til að fá hjálp en þegar ég
kom til að hjálpa þá glotti hann bara og horfði á rass og brjóst til skiptis og sleikti útum
áður en hann gat komið spurningunni útúr sér.
30. Ég sem yfirmaður þarf að útskýra eitthvað sem þurfti að gera fyrir forritara, klára
yfirferðina, geng tvö skref í burtu, man eftir einhverju, sný mér við til að segja það og sé
að hann er hangandi háfur út úr stólnum að glápa á rassinn á mér. Ég var svo hissa ég
fattaði ekki að hafa orð á þessu. En gerði eins og þú einmitt, fór í staðinn að passa í
hverju ég var yfir gallabuxunum.
15
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
31. Þegar ég var að vinna í banka hitti ég faðir kunningjakonu minnar á vinnudjammi en hann
var þá háttsettur innan bankans. Hann settist hjá mér og var mjög vinalegur en smám
saman fór hann að verða aðeins of vinalegur, talandi um útlit mitt og fleira í þeim dúr. Ég
minnti hann á það hvernig við þekktumst (þ.e. í gegnum dóttur hans) og að ég væri
nýbúin að gifta mig fyrr um sumarið. Hans viðbrögð við því voru að byrja að káfa á
lærunum á mér og segja mér hvað hann myndi vilja gera við mig í rúminu!
32. í öðru fyrirtæki lenti ég í því á vinnudjammi að samstarfsmaður króaði mig af og reyndi
forcefully að fara í sleik og eitthvað káf áður en ég ýtti honum af mér og kom mér í burtu.
Ég afsakaði hegðun hans í huganum með því að hann hefði bara verið drukkinn. Komst
að því nokkrum vikum seinna í samræðum við annan samstarfsmann að viðkomandi
hafði aldrei prófað áfengi og var ekki að drekka umrætt kvöld!
33. Ég hef á staffadjammi upplifað óumbeðið þukl og káf þannig að ég hef þurft að berja
einstaklinginn frá mér í vitna viðurvist. Það byrjaði ekki það gróft en svona vatt upp á sig á
nokkrum djömmum. Mörk sem ég setti voru ítrekað brotin. Þegar hann hélt svo áfram á
næsta djammi eftir þetta, fékk ég endanlega nóg og talaði við hann þegar hann var edrú.
Það var ekkert mikið en kom rólega fram að ég kærði mig ekki um þetta á djamminu. Það
hafði áhrif og hann lætur mig vera, forðast mig jafnvel. Ég gerði ekkert meira í þessu og
er pínu hugsi í dag eftir að lesa sögurnar hér hvort ég hefði átt að reyna annað ferli. Veit
samt satt að segja ekki hvort það hefði haft eitthvað að segja. Mér fannst líka einfaldara
að tækla þetta svona sjálf. Kannski þar sem að í öðrum svona tilvikum fyrr á ferlinum leið
mér eins og ábyrgðinni væri varpað á mig og því auðveldara að díla við þetta bara sjálf
strax. Ég hef einfaldlega ekki áhuga á að vera “manneskjan sem lét reka XX”…
Það sem er aðallega metoo:ið í þessu í mínum huga er að mest allt fyrirtækið veit um
hvern ræðir en öll þessi ár hefur ekkert verið gert í því. Hann er svona með víni. Berðu
hann bara af þér. Nýjar stelpur verða svo líka að læra það, eða eru varaðar við ef þær eru
heppnar. Ég opnaði á umræðu um þetta í hádeginu núna nýlega. Strákarnir við borðið
voru að ræða metoo almennt og voru í hálfgerðu losti yfir hversu illa væri haldið á málum
í stjórnmálum og sviðslistum á Íslandi. Þeir vissu svo alveg af þessum ákveðna
einstakling i fyrirtækinu. Enda engin leið að mæta á staffadjamm án þess. Þegar dæmið
var orðið nær þeim þá voru þeir eiginlega mest hissa á að þetta væri eitthvað sem stelpur
tækju nærri sér. Það sést nefnilega ekki á okkur sjáiði til. Við hristum þetta nefnilega af
okkur svo fljótt. Við viljum kanski fæstar okkar vera með eitthvað vesen. Einn var reyndar
greinilega meðvitaður um það. Semsagt að þetta teldist sem áreiti eða kynbundið ofbeldi.
Einn hélt í einlægni að það að vera drukkinn væri afsökun. En tók samt rökum um að það
gæti varla verið, þar sem að langflestir virða mörk þó þeir séu drukknir og glæpir svo sem
stuldur og líkamsárás fyrnast ekki bara þó gerandi sé undir áhrifum einhverra vímuefna.
Öllum kom á óvart að þetta væri algengt, enginn þeirra átti von á að ég hefði þessa
reynslu eða að þetta væri í kringum þá. Þetta greinilega sést ekki. Eða skilst ekki. Sama
hvað okkur finnst þetta hljóta að vera augljóst. Þetta átak er svo þarft. Höfum hátt!
16
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
34. Einu sinni þegar ég var kasólétt og sat á kaffistofunni ásamt nokkrum vinnufélögum á
þáverandi vinnustað þar á meðal yfirmanninum. Hann fer allt í einu að segja að helsti
gallinn við að konur verði óléttar sé sá að eftir að þær fæði þá sé ekki jafn gott að sofa hjá
þeim því þær verði svo víðar í klofinu.
Ég missti gjörsamlega andlitið og náði engan vegin styrk til að segja neitt við manninn.
Hinir sem heyrðu þetta sögðu heldur ekki neitt. Mig langar að trúa að í dag myndu
vonandi margir láta manninn heyra það!
Mér líður enn illa þegar ég sé þennan mann.
35. Þegar ég var tiltölulega nýbyrjuð á vinnustað þar sem karlar voru í miklum meirihluta
kláraðist eitt sinn mjólkin í kaffitíma. Mig minnir að þetta hafi verið á rauðum degi því ekki
var hægt að skreppa út til að kaupa meiri mjólk.
Einn karlanna kallaði þá hátt og snjallt yfir hópinn: “nú þetta er allt í lagi, við mjólkum bara
Gunnu!” við
mikinn fögnuð og hlátur viðstaddra. Ég var þá svo ung og ný í starfi að ég
þorði ekkert að segja en fölnaði innra með mér. Þetta er því miður bara eitt dæmi af
mörgum.
36. Ég get bara sagt #meetoo . Draumurinn minn er að verða besti framenda vefari á Íslandi
með hönnun sem styrkleika. Núna er ég ekki einu sinni í þessum heimi lengur. Fór tilbaka
í auðvelda heiminn. Sakna nördismans. Langar mest að leysa vandamál og gera
notendur hamingjusama.
37. Ég hef einungis lent í sexisma. Nýr gaur beint úr skóla: “Af hverju ætti ég að hlusta á þig”
þegar ég er doing the brief. Kastað css for dummies á borðið mitt: “Ef þú vilt að þetta
verði gert geturðu bara lært það sjálf” þegar ég starfaði við samræmingu kerfa á og
viðmóts á nýjum vef. Kvart frá yfirmanni um að ég fari alltaf svo snemma að sækja þessi
helvítis börn (eftir 8 tíma vinnudag). Allskonar svona sjitt en ekkert káf eða neitt svoleiðis.
38. Var ég búin að segja í ykkur frá klámpóstlistanum sem var rekinn í fyrirtækinu þar sem ég
starfaði fyrst sem verkefnastjóri? Allt fyrsta árið hjá fyrirtækinu var þetta í gangi, fyrst í
laumi en svo sífellt augljósara þar til það þótti bara í lagi að draga upp og ræða
sendingarnar fyrir framan mig og menn að reyna að toppa hvern annan í
smekklegheitum. Ég heimtaði að fara á listann í nafni jafnréttisins og spammaði hann svo
með ellismellahommaleðurklámi þar til mér var fleygt af honum fyrir substandard
klámsendingar. Ég gerði ítrekaðar athugasemdir við þessa framkomu og tilvist listans en
ekki fór hann. Það var ekki fyrr en ég skrifaði langt bréf til framkvæmdastjórans og var við
það að hætta að listinn var fjarlægður. Þá stóð reyndar til að ráða fleiri konur og ég benti
á að það væri ekki hægt að bjóða þeim upp á þetta en auðvitað var ég máluð upp sem
húmorslausa pían sem eyðilagði þessa fínu rúnk stemmingu í fyrirtækinu.
39. Framsækið vefportal gerði samning við einhvern strípistað um beina útsendingu á strippi
á vefnum alveg
í fyrsta sinn á Íslandi… opið stripp fyrir almenning… engin leið til að
kanna hver var að horfa auðvitað, börn eða fullorðnir. Það var sett upp stúdíó niðri á
17
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
Laugavegi á skrifstofu fjármálastjórans ef ég var rétt. Og af einhverri ástæðu þurftu 3
samstarfsmenn mínir að vera inni í herberginu með dömunum til að tryggja að
útsendingin af strippinu gengi nú að óskum. Ef ég man rétt gerðist þetta í einhver 3 skipti
við hávær mótmæli kvennanna á staðnum, bæði yfir framkomu samstarfsmannanna og
því að bjóða yfir höfuð upp á fyrirbærið. Ég man samt ekki afhverju díllinn var ekki
endurnýjaður, líklegar af því að þetta náði ekki að trekkja inn á staðinn heldur en að það
væri tekið mark á okkur.
40. Einn þeirra manna sem talar nú um að umræðan sé komin of langt lagði á mig
endalausar prófraunir sem verkefnastjóra til að kanna hvort ég væri starfinu örugglega
vaxin, þegar hann vann sem aðkeyptur ráðgjafi hjá viðskiptavini, sem hafði valið að kaupa
hugbúnaðarlausn frá mínu fyrirtæki en ekki hans. Samkeppnin og rígurinn milli
fyrirtækjanna okkar birtist með ýmsum hætti m.a. rasisma gagnvart erlendum starfsmanni
en birtist í sexisma þegar kom að mér. Síðar átti ég eftir að vinna “með” öðrum starfmanni
þessa sama ráðgjafafyrirtækis og var þá kominn annar úr sama fratpartýi.
Neitaði að
senda gögn, hrútskýrði framyfir mjaltir, kommentaði “jájá,[skítaglott] ert þú að fara heim
með þessum lúða?” þegar hann rakst á mig á djamminu með manninum mínum til 10 ára
(þegiðu gaur, none of your business). Prófraunirnar voru endalausar því í hvert sinn sem
einn sjálfskipaður gæðastjórinn/remban sannfærðist var næsti mættur til að kanna
mörkin. Þar til þeir vildu svo fá mig í verkefnin sín, en hver nennir að vinna með þessu?
Ég sagði pent nei.
41. Ég var forstjóri eins af stærstu íslensku tæknifyrirtækjunum og ein af fjórum konum sem
stýrðu 100 stærstu fyrirtækjunum á Íslandi. Ég þurfti að ferðast nokkuð vegna samskipta
við birgja og gisti þá oft á sama hóteli og aðrir Íslendingar. Ég var oft eina konan í hópi
íslenskra karlmanna á hótelbarnum. Mér leið vel á meðan við töluðum um viðskipti eða
þar til ég fór að fá óumbeðin og óeðlileg tilboð. Ég var ítrekað spurð í hvaða herbergi ég
væri eins og það væri bara alveg sjálfsagt að ég myndi bara sofa hjá þeim sem spurði. Ég
neitaði að gefa upp herbergisnúmerið mitt og spurði í framhaldinu hvað eiginkona þeirra
myndi segja um þetta tilboð. Ég fékk aldrei svar við þeirri spurningu. Allt í einu var ég ekki
lengur forstjóri eins stærsta tölvufyrirtækis á Íslandi á meðal jafninga erlendis, heldur var
ég bara kynlífstækifæri fjarri eiginkonum og börnum. Það er ljóst að jafnrétti verður aldrei
náð á meðan karlmenn hugsa svona.
42. Nú er ég búin að vera í nýju starfi í tæpt ár. Í september klagaði ég kollega minn til
yfirmanns fyrir áreiti (hann sló mig í rassinn). Yfirmaðurinn minn sagði fyrst að hann
myndi taka á þessu með það sama. Mánuði síðar hafði ég ekkert heyrt. Ég ítreka við
yfirmanninn og þá vill hann ekkert gera. Ég læt óánægju mína í ljós og þá spyr hann mig
“hvað viltu að ég geri”….Hver er yfirmaðurinn?….Lokst felst hann á við að ræða við
viðkomandi. Þegar við hittumst aftur ætlaðist ég til að hann myndi segja mér hver staðan
á málinu væri. Það hafði yfirmaðurinn minn ekki hugsað sér að gera. Nú voru liðnir 2
mánuðir og 1 vika frá því að ég kvartaði fyrst. Að lokum fór ég með málið á næsta stig til
yfirmanns yfirmanns míns og þá var það sett í hefðbundið ferli sem endaði með blett á
18
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
starfsmannaskrá viðkomandi. Ég og maðurinn sem áreitti mig er 25 árum eldri en ég, er
giftur og á uppkomin börn. Við sitjum á sömu skrifstofu, ca. 6 metra frá hvort öðru. Þetta
var bara brot.
43. Fyrir tæpum áratug hóf ég störf hjá stóru hátæknifyrirtæki þar sem 90% starfsmanna á
þeim tíma voru karlmenn. Á fyrsta staffadjamminu greip samstarfsmaður um mig á
dansgólfinu, þuklaði mig upp og niður (þar með á brjóstunum) og sagðist ætla með mig
heim. Ég náði að komast burt frá honum en á mánudeginum ræddi ég þetta við
samstarfskonu. Hún sagði að hann léti svona á öllum djömmum og ég þyrfti bara að
passa mig á honum.
Ég og maðurinn vorum með sama yfirmann (konu) sem ég ræddi við um það sem gerðist.
Hún hneykslaðist á frásögn minni og sagðist ekki trúa sliku upp á hann. Ekki svo löngu
seinna lét ég færa mig innan fyrirtækisins og hætti svo einhverjum árum síðar.
Sameiginlegi yfirmaður okkar var rekin (vegna annarra mála) eftir að ég hætti en eftir því
sem ég veit best er maðurinn þar enn.
44. Ég hef (sem betur fer) lent í fáum svona tilfellum en gæti bunað hingað inn endalausri
runu af niðurlægjandi kommentum og atvikum sem eru ekki af kynferðislegum máta. Til
dæmis vann ég eitt sinn fyrir veiruvarnarfyrirtæki og eitt sumar vorum við að drukkna í
vinnu. Ég og önnur kona vorum búnar að vinna sleitulaust og vorum kófsveittar við að
hreinsa tölvur af sérlega slæmum vírus þegar fréttakona frá Morgunblaðinu kom og var
að fjalla um málið.
Þegar kom að því að taka mynd fyrir fréttina þá var okkur tveimur ýtt út úr tölvuhrúgunni
og strákur sem vann það sumar í afgreiðslunni látinn sitja fyrir. Við vorum greinilega ekki
nógu “nördalegar” konurnar.
45. Besta atriðið sem ég lenti í var miðaldra karl sem hringdi vegna tölvuvandræða. Þegar ég
svaraði hikaði hann en sagðist svo hafa beðið um samband við tækniMANN. Ég sagðist
vera einn slíkur og þá hóstaði hann loks upp vandamálinu. Það keyrði þó um þverbak
þegar manngarmurinn þurfti svo að koma með tölvuna til mín. Ég varð að segja honum
að hann hefði komið með skjáinn en ekki tölvuna og þá rauk hann út í fússi og ég heyrði
ekki meir í honum. Hefur sennilega náð sambandi við tækniMANN annars staðar
46. Ég er ótrúlega ánægð með þessa umræðu, ég hef oftar en einu sinni og oftar en tvisvar
orðið fyrir mismunandi kynbundinni mismunun og áreitni og ætla að deila með ykkur einni
sögu.
Fyrir 2 árum síðan var maður að vinna með mér. Honum fannst í óspurðum fréttum
viðeigandi að segja mér frá því að hann væri frábær í því að sleikja kynfæri kvenna, ég
myndi hreinlega öskra af ánægju ef ég yrði svo heppin að kynnast því, ég þáði ekki
boðið…. Á þessum tíma komu upp fleiri atvik bæði gagnvart mér og eins veit ég af öðrum
stelpum sem lentu í honum á þessum tíma.
Engin kvartaði undan honum þá, en ég vona innilega að þessi umræða muni gefa
19
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
stelpum styrk til að segja frá þegar þær lenda í svona hlutum, svo hægt sé að bregðast
við.
47. Muniði eftir strandablakvellinum á Agora sýningunni haustið 2000? Hvað mig langaði að
sökkva niður úr jörðinni að vera stjórnandi fyrirtækis að selja hugbúnaðarlausnir á sama
stað. Og fá svo yfir sig athugasemdirnar: “ættir þú ekki að vera þarna?” eða “kva, bara
allar fullklæddar í þessum bás?” Verst fannst mér þó hvað mörgum fannst eðlilegt að nota
berar konur til að selja hugbúnað.
48. Í faghóp um forritun á Facebook koma reglulega upp umræður sem tengjast stöðu
kvenna í faginu. Nýjasta dæmið eru nokkuð ofsafengnar umræður um hvort það sé
eðlilegt að ávarpa hópinn í karlkyni og hvort það sé viðkvæmni eða jafnvel yfirgangur að
fara fram á að nota kynlaus ávörp, eins og “sæl” eða “hæ” þegar hópurinn er ávarpaður.
Einungis eru nokkrir mánuðir síðan síðasta upphlaup var í sama hópi yfir sk. Google
Manifesto. Þær konur sem þar tóku til máls voru sussaðar niður og bent á að téðu
manifestoi væri réttilega bent á líkamlegar ástæður þess að þær væru síður til þess
fallnar til að starfa á þessu sviði og kúltúr í greininni hefði ekkert með það að gera. Þegar
sett var spurningarmerki við að menn tjáðu sig um greinina án þess að hafa lesið hana
áttu eftirfarandi skoðanaskipti sér stað:
Það er rétt að það komi fram að langflestir kollega okkar ofbauð þetta orðalag og
fordæmdu það.
49. “Viltu ekki bara vera sæt og spyrja strákana fyrir mig”
“Vonbrigði að karlarnir láti stelpuna bara tala við mig. Eins og ég sé ekki mikilvægur”
“Er þetta svona þar sem strákarnir gera vinnuna og sjá um tæknistuffið meðan flotta
konan er send fram að útskýra og brosa fallega”
“Ég skal borga fyrir vírushreinsun ef þú kemur með mér á deit”
“Raftæki fóru niður í gæðum þegar menn voru neyddir að láta konur vera með”
“Get ég fengið að tala við einhvern annan (alltaf beðið um karlmann)”
“Kannski þú sækir strákana til að skoða símann minn, þú getur aðstoðað mig ef ég lendi i
vandræðum með stillingarnar á þvottavélinni”
20
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
“Viltu ekki sækja einhvern annan áður en ég byrja að útskýra svo ég þurfi ekki að útskýra
allt aftur”
“Væri ekki sniðugt að spyrja strákana áður en þú ruglar eitthvað í tölvunni minni”
“Má ég tala frekar við strákinn sem ég ræddi við áðan?” (Bað um yfirmann og ég kom en
vildi aftur undirmanninn afþvi ég var ekki með útlitið sem honum hentaði)
“Þú værir sætari ef þú brostir meira” (eftir að rífast í mér að ég skilji ekki hvernig
hugbunaðarvillur virki afþvi ég er of heimsk til þess.. hans orð)
“Svona sæt stelpa a ekki að vera svona alvarleg” (Var einnig búin að útskýra að ég væri
heimsk stelpa)
Aðeins smá hlutfall af athugasemdum sem ég er orðin allt of vön í vinnunni.
Ekki mikið kynferðislegt. Þó að komment a útlit mitt og líkama sé algengt. Þá er það alltaf
kynjatengt og niðrandi.
50. Þetta er mín saga núna síðast liðið rúma ár, 1 staður, í 1 deild, þar sem draumur breyttist
í martröð
Loksins var ég komin í draumastarfið mitt, yess! Vel gert ég ég flutti í nýja deild í vinnunni
fyrir rúmu ári síðan, spennandi tímar voru framundan……en það fjaraði út fljótt.
Athugasemdir á vinnustaðnum þetta rúma ár hafa verið ótrúlegar og á allt öðru leveli en
ég hef kynnst áður í þessum geira. Allt undir því yfirskini að þetta sé bara þeirra „svarti
húmor“. Enginn setti út á þessa framkomu, þrátt fyrir að margir heyrðu.
Þeir hafa sagt við mig að það þurfi nú að refsa mér rækilega, fara „á mig“ inn í
fundarherbergi, ég sé greinilega ekki vön að fá einn „stóran“, einu sinni hrópaði einn á
mig yfir herbergið „ég ætla að nauðga þér“, önnur athugasemd var „þú ert svona kona
sem allir karlar vilja lemja“. Ég beðin að sækja kaffi af því ég væri nú kona og svo að það
væri svo gott að ég væri byrjuð í deildinni því núna mynd ég passa börnin á „börnin í
vinnuna“ deginum. Mér sagt yfir allt herbergið að ég hefði verið svo „erfið“ í hinni deildinni
sem ég kom úr en svo væri ég bara voða þægileg núna hjá þeim. Þetta eru bara svona
brot af athugasemdunum sem ég hef fengið undanfarið árið.
Sumt hefur verið minna kynferðislegt og meira bara talað niður til mín og ýjað að
vanhæfni i starfi, t.d. áður en ég fór á fund var mér sagt að ég ætti að vera „bara prúð og
stillt“ á fundinum og ekki segja neitt og svo spurði viðkomandi annan samstarfsfélaga eftir
fundinn„var hún ekki örugglega prúð og stillt á fundinum?“. Sami aðili labbaði inn í
herbergið mitt og tilkynnti yfir hópinn að „ég hefði gert gagn í dag“, þegar ég spurði hvað í
fokkinu hann ætti við kom, „nei sko ég er að hrósa þér“. Sama aðila fannst við hæfi að
lýsa því yfir fyrir framan alla í deildinni minni að það væri svo miklu skemmtilegra að horfa
á mig borða pinnaís en alla hina (kallana).
Á einu staffa djammi vorum við komin á bar í bænum, samstarfsfélagi þvingaði sér leið
með mér inn á klósett, lokaði hurðinni og reyndi að fá mig til að kyssa sig, „en þú ert
einmitt svona kona sem ég vildi vera með ef ég ætti ekki konu“, þegar ég neitaði áfram
bað hann mig að totta sig, “common bara eitt tott”. Ég náði að koma honum í skilning um
að ég væri ekki að fara að gera neitt slíkt. Sagði honum að auk þess væri samstarfskona
okkar fyrir utan og hún hefði nú alveg séð hann koma inn á eftir mér. Þá fór hann.
21
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
51. Á árshátíð fyrirtækisins þá sá annar samstarfsfélagi ástæðu til að troða hendinni á mér í
klofið á sér þegar ég var að faðma viðkomandi á árshátíð. Kæristinn minn sá þetta, hann
hefur alltaf trúað mér þegar ég segi honum sögurnar þegar ég kem heim úr vinnunni, en
hann var samt shokkeraður að sjá að menn gerðu svona bara fyrir framan alla aðra.
Á jólahlaðborði deildarinnar kom aðili að mér og strauk niður bakið á mér og fór að þukla
á rassinum á mér. Þegar ég spurði hann hvað væri í gangi og ýtti honum frá mér, þá hló
hann bara og sagði „hvaða hvaða“ og gerði það aftur. Aftur ýtti ég honum frá. Annar
samstarfsfélagi kom mér þá til varnar og skammaði viðkomandi sem þá reyndi að malda í
móinn og sagði að þetta væri allt í lagi því ég hafi alveg gefið honum leyfi, „var það ekki?“
ég sagðist ekki hafa gert það og labbaði í burtu.
En ég s.s. drekk nánast ALDREI á staffadjömmum, klæði mig í jogging buxur og
vinnuskyrtur í vinnunni, búin að þyngjast fullt og mála mig lítið sem ekkert. Allt til að reyna
að fitta bara inn í strákahópinn. Það virðist ekki hjálpa.
Ég hef líka reynt að tala við þá um þetta, one on one, reyndi að segja þeim að mér þætti
svona konubrandar svoldið þreyttir, „ég meina gerið bara frekar grín af því að ég er feit!“
og reyndi að fá þá verstu til að „hjálpa“ mér með þá vægustu, það dugði í smá stund, en
svo kom þetta bara aftur.
Ég talaði við hópstjórann minn og síðar deildarstjórann en lítið breyttist. Ég sagði þeim
ekki allar svæsnustu sögunar, bara dæmi, og neitaði alltaf að gefa upp hverjir gerendurnir
væru, ég væri ekki í ei
hefnd, ég vildi bara að þessi framkoma myndi hætta og þeir
myndu taka á því með mér ef ég benti þeim á þetta. Þegar ég spurði deildarstjórann hvort
hann gæti ímyndað sér hvers vegna þetta væri að gerast fyrir mig, þá var svarið „ætli það
sé ekki af því þú virkar bara svona saklaus og einföld“ og svo síðar kom hann með að ég
þyrfti bara að setja mönnum mörk, já ok, takk fyrir EKKERT!!!!
Þegar einn sendi inn mynd af mér á allan hópinn með textanum að ég væri „mætt í
eldhúsið“ þá ég tók það upp við deildastjórann daginn eftir, treystandi á það að hann
myndi standa með mér eftir samtölin okkar um þessi málefni, ég sagði að mér þætti
þetta ekki fyndið, en þá sagði deildastjórinn að honum þætti þetta bara geggjað fyndið og
ég bara, ok, getur þú útskýrt því ég skil ekki brandarann, þá var svarið, jú af því þú ert svo
brjáluð yfir þessu og þú ert svo mikil kvenréttindakona. VÁÁ! Ertu að grínast???
Þá gafst ég upp endanlega, ég rauk út og sagðist ekki geta meir, einn vinnufélagi kom og
hitti mig úti með dótið mitt og ég sagði viðkomandi allar sólarsöguna og í þetta sinn hverjir
gerendurnir væru í grófustu sögunum. Þessi aðili fór með málið til deildarstjóra sem fór þá
með málið í starfsmannahaldið. En ég sé bara fyrir mér að þetta muni aldrei hætta, enda
hefur viðhorfið hjá mörgum þarna í deildinni (mest megnis karlar) vegna #meetoo verið
bara „iss, hvaða væl er þetta, má bara ekkert lengur?“
Málið er hjá starfsmannahaldi, ég þarf að samþykkja að þeir ræði við aðilana „í mínu
nafni“ og þeir fái „gult spjald“, en ég sé bara ekki að þetta muni nokkru tíman breytast og
mér finnst þetta vera hópvandamál svo ég sé ekki að það leysist við að láta þessa fá gult
spjald í leyni eða láta en
1 fara. Fjölskyldan og kærasti minn eru reið, ég er það ekki, ég
er bara orkulaus, leið, kvíðin fyrir vinnunni og sorgmædd, þetta var jú búið að vera
draumurinn minn svo lengi.
Svo ég hugsa að niðurstaðan verði að ég gefist upp og hætti, hef unnið þarna í ca 9 ár,
22
#MeToo sögur kvenna í tækni,
vef og hugbúnaðariðnaði á Íslandi
en loksins var ég komin í drauma starfið í þessari nýju deild. Ég vissi svo sem að ég væri
að fara í enn meiri karlaheim innan tölvugeirans í þessu starfi sem ég er í núna en ég átti
aldrei von á svona framkomu, svo já kannski er ég bara of saklaus og einföld!
52. Þegar ég var nýbyrjuð að vinna eftir nám, mætti ég á fyrstu árshátíðina með þáverandi
vinnustað og hitti maka vinnufélaga míns. Hann var háttsettur í ráðgjafafyrirtæki í mínum
geira og sagði mér að hann hefði viljað ráða mig, af hverju ég hefði ekki talað við hann.
Ég sagði honum eins og var að ég var ekki til í að vinna mikla yfirvinnu (eins og ég vissi
að var lenskan á þessum tíma, 2007 og launin toguð upp með yfirvinnu). Þá svaraði
hann: “En við bjóðum konum hlutastarf, 40 tíma á viku!”. Man ekki hverju ég svaraði en
þetta hefur alltaf setið í mér, þvílík vanvirðing við konur. Var bara enn ánægðari að hafa
ekki farið að vinna hjá honum.
53. Ég var ekki búin að vinna nema tæpa þrjá mánuði þegar farið var með okkur stjórnendur í
vinnuferð út á land. Fyrsta kvöldið var djammað talsvert. Ég fór snemma að sofa, við
vorum líklega 3 konur og hátt í 30 karlar og mér leiddist húmorinn. Þegar við sátum í
vinnuhópi daginn eftir spurði einn karlanna hvort ég væri ekki góð í sexinu. Ég hváði
(spurningin var ekki í neinu samræmi við það sem við vorum að ræða), hann endurtók þá
hvort ég væri góð í rúminu. Ég eldroðnaði, leit í kringum mig og sá að allir litu undan og
létu eins og þeir heyrðu þetta ekki. Ég sagðist ekki svara svona spurningum og vinnan
hélt áfram (með frammíköllum hans uns hann yfirgaf okkur). Ég ræddi hegðun hans við
annan sem var í vinnuhópnum sem afsakaði hann með því að hann væri alkóhólisti sem
hefði fallið kvöldið áður. Ég sagði honum að mér hefði þótt það mjög óþægilegt að þeir
skyldu ekkert hafa sagt og þar með látið eins og þessi hegðun mannsins væri í lagi. Ég
klagaði manninn fyrir yfirmanni mínum og yfirmanni hans. Hann kom nokkrum dögum
síðar og bað mig afsökunar.. Enginn túlkaði þetta sem kynferðislega áreitni, nema ég.
54. Fyrir nokkrum árum var ég á vinnufundi með 2 vinnufélögum, karlkyns, annar þeirra var í
sífellu með neðanmittisbrandara (sem ég hef aldrei haft húmor fyrir). Ég sneri mér að
honum og spurði af hverju hann talaði svona við mig? mér þætti þetta óþægilegt og
leiðinlegt. Ég sá að þeim þriðja þótti óþægilegt að ég skyldi fara að ræða þetta og
blandaði sér ekki í umræðuna. En vinnufélagi minn baðst afsökunar, snarhætti þessu og
það bara aldrei skugga á samstarf okkar uppfrá því. Þegar ég lít til baka finnst mér ég
hafa lent í ótrúlega fáum svona tilvikum. Kannski af því að ég fór alltaf svo snemma að
sofa í vinnuferðum? Af því að það kvisaðist út að ég hafði klagað dónann? Af því að ég
var yfirlýst frekja? Eða voru karlarnir sem ég vann með undantekning? Eða varð ég bara
strax samdauna þessu?

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu