#MeToo kvenna í sviðslistum

FRÁSAGNIR KVENNA Í SVIÐSLISTUM
1. Einu sinni þegar ég var leikkona í sýningu greip einn sviðsmaðurinn í píkuna á
mér þegar ég var rétt að stíga á svið í stórt atriði þar sem ég var aðal. Ég tilkynnti þetta og hann bað mig afsökunar en það sem sjokkeraði mig mest og
situr mikið í mér eru viðbrögð stjórnenda. Ég var spurð hvað ég vildi eiginlega
að gert yrði í málinu, eins og það væri á mína ábyrgð. Ég spurði hvort það
væru ekki til einhverjir verkferlar? Þá var mér sagt að viðkomandi yrði tekinn
úr sýningunni „fyrir mig”. Ábyrgðin öll á mér semsagt. Þegar ég og
stjórnandinn vorum búin að tala saman og ég var að kveðja, þá fannst mér
eins og hann væri að opna faðminn, sem mér fannst undarlegt en ókei… svo
ég faðmaði hann. Þá sagði hann (á meðan ég var í fanginu á honum) “er þetta
kannski óviðeigandi?”.
2. Karlkyns leikstjórinn grínast með að ég sé lauslát drusla fyrir framan allan
leikhópinn og kallar mig almannagjá, þótt ég sé í föstu sambandi og að
kærastinn minn sé hluti af leikhópnum. Enginn þorir að gera annað en að
hlæja með djókinu. Kærastinn minn líka. Mig langar að hverfa ofan í gólfið.
Fannst ég algerlega svipt sjálfsvirðingunni fyrir framan vinnufélagana.
3. Ég var 14 ára þegar ég lék í minni fyrstu kvikmynd, og ég lék stelpu á aldrinum
12-17 ára í myndinni. Ég var fullorðinsleg eftir aldri án búnings. Nokkrir í
crewinu voru alveg með það á heilanum hvort ég væri hrein mey eða ekki. Og
það er ekki fyrr en núna að ég skil hvað þetta var lasið – ég í alvöru leit á þetta
sem jákvæða athygli, að kannski þætti þeim ég sæt.
4. Ég var að leika í sýningu og varð hrifin af ljósamanninum. Við byrjuðum að
hittast og ég vildi fara rólega og bíða með kynlíf þangað til við þekktumst
betur. Kvöld eitt missti hann þolinmæðina og nauðgaði mér. Ég mætti ósofin
og í áfalli á æfingu daginn eftir. Ég skalf og titraði við tilhugsunina um að hann
vofði hátt yfir höfðinu á mér, að elta mig með eltiljósi. Mér fannst ég
fangelsuð. Í hádeginu gat ég ekkert borðað, og þá sagði aðalleikarinn hátt og
hæðnislega yfir borðið, svo allir heyrðu: Æ æ, mölvaði ljósamaðurinn í þér
hjartað? Svo fór hann að hlæja.
5. Ég er við tökur á íslenskri sjónvarpsþáttaröð, er í litlu hlutverki en samt með
nokkrar línur. Einn af aðalleikurunum byrjar að reyna við mig. Ég hef ekki
áhuga á honum en reyni samt að vera kurteis og “næs”, til að skemma ekki
móralinn í tökum. Þegar ég fer út í bíl eftir að tökurnar eru búnar sé ég að
hann er búinn að senda mér sms. Með mynd af typpinu á sér.
6. Ég var í litlu hlutverki í söngleik. Í frumsýningar partíinu var ég inni á
kvennaklósetti að þvo mér hendurnar þegar hurðinni á einum klefanum er allt
í einu hrundið upp og einn af stjórnendum sýningarinnar birtist sauðdrukkinn,
grípur í mig og dregur mig inn, lokar og fer að kyssa mig og snerta. Maður
sem ég bar virðingu fyrir og fannst sjarmerandi en hann er giftur og og ég
sagði honum sem var að það er turn off fyrir mig, eins og reyndar bæði
fylleríið og kvennaklósettið. Hann hélt áfram að nauða í mér þangað til ég reif
mig lausa og hljóp út. Nokkrum dögum seinna komu upp veikindi hjá leikkonu
í aðalhlutverki og ég hefði getað hlaupið í skarðið. Ég mannaði mig upp og fór
og ræddi um það við hann og það voru mjög einföld samskipti: hann gerði
mér alveg ljóst að ég myndi ekki fá vinnu í verkefni hjá honum aftur. Og það
hefur staðist.
7. “Þú verður að passa þig að verða ekki aftur feit, það þykir ekki flott í þessum
bransa að vera feit.”
8. Eitt fyrsta djobbið mitt í bransanum var við gerð bíómyndar, þetta var
fjölþjóðleg framleiðsla og í aðalhlutverki var rísandi Hollywood stjarna með
egó í samræmi við það. Eitt kvöldið bað yfirmaður minn mig að sækja
eitthvað á sitt heimili sem leikarann vantaði og ég gerði það, það var vinnan
mín. Svo kem ég aftur á hótelið þar sem allt crewið var, leikarar, leikstjóri og
læt leikarann hafa þetta sem ég man ekki hvað var. Þá króar hann mig af úti í
horni, þakkar mér fyrir eins og ég hafi verið að gera honum persónulegan
greiða en ekki vinna vinnuna mína og grípur um mig og kyssir mig
rembingskossi og reynir að troða tungunni upp í mig. Ég náði að slíta mig
lausa og leikarinn fór og klagaði mig í yfirmann minn.
9. Á barnum eftir tökur á fyrsta verkefninu sem ég framleiddi.􀀀”Þú veist að X
réði þig bara vegna þess að hann vill komast í nærbuxurnar hjá þér.”
10. Ég er eiginlega orðlaus, veit og man að það var margt sagt og klipið og kreist
en hún sem ég var þá ákvað hún að láta sem ekkert væri og að það væri
eðlilegasti hlutur í heimi þegar einhver kæmi til að setjast í stólinn (smink)
gripi um bæði brjóstin á mér, eða segði eitthvað óviðeigandi um líkama minn
og eða hvort ég hefði fengið það nýlega. Ég þá ákvað að vera gæs, þið vitið
eins og að skvetta vatni á gæs, smám saman hætti ég að taka eftir þessu sem
er auðvitað alls ekki í lagi. Takk fyrir að minna mig á að þetta var og er ekki í
lagi. Minni í leiðinni á að við verðum að passa syni okkar svo þeir detti ekki í
þessa gryfju kvenfyrirlitningar. #höfumhátt #metoo
11. Hér er ein saga sem flokkast kannski ekki undir kynferðislega áreitni heldur
viðhorf sem sumir framleiðendur virðast hafa til
leikkvenna.􀀀Hollywood-mynd, heimsfrægur leikari að leikstýra sjálfum sér.
Íslenskur framleiðandi hefur samband og býður mér vinnu á setti. Ég mæti í
viðtal og hitti þar kvenkyns meðlim úr framleiðslu teyminu. Þar var mér sagt
að starfið fælist í að passa monitor leikstjórans. Standa hjá honum og passa
monitorinn. Ég afþakkaði þar sem ég taldi tíma mínum betur varið.􀀀 Skömmu
síðar fæ ég símtal frá sama framleiðanda sem er þá staddur í þyrlu með
fyrrnefndum leikstjóra. Framleiðandinn býður mér í partý um kvöldið og segir
mér að taka tvær vinkonur mínar með. Hann réttir leikstjóranum símann og
ég spjalla stuttlega við hann. Ég segist ætla að hugsa málið. Framleiðandinn
hringir nokkrum sinnum aftur, segir að þetta gæti nú greitt götur mínar í
Hollywood. Þá segi ég honum að ég skuli nú mæta, með kærastanum mínum.
Hann segir mér að það gangi ekki upp. Ég afþakka því gott boð og heyri svo af
því að önnur leikkona hafi þegið þetta fína boð. 􀀀Can’t make this shit up,
allavega ekki þetta með monitorinn og þyrluna. Mér var ekki ofboðið heldur
fannst mér þetta fyndið og absúrd en á heldur lágu plani. Og ég fíla alveg
þennan framleiðanda.
12. Hversu hræðilegt er það að þurfa að telja sig heppna að hafa aldrei orðið fyrir
kynferðislegu áreiti eða þaðan af verra! 􀀀En síðustu vikur hef ég áttað mig á
að ég er greinilega heppin að hafa sloppið. 􀀀Hræðilegt að heyra allar þessar
sögur og óskiljanlegt hvernig mannfólk leyfir sér að haga sér gagnvart öðrum.
􀀀Algjört virðingarleysi fyrir tilfinningum og líkama annara er greinilega
algengt á litla “saklausa” Íslandi! 􀀀Ég er fegin að þessi bylting og
vitundarvakning sé í gangi svo að dóttir mín læri að engin/n hefur rétt á að
fara inn fyrir þau mörk sem hún setur! #metoo
13. Ég var mjög ung þegar ég ákvað að þetta væri minn framtíðar
starfsvettvangur og lagði mikinn metnað í mína leiklist. Þegar ég var 15 ára
var ungur leikari sem ég kannaðist ágætalega við að leysa af frábæra
leiklistarkennarann minn, konu sem ég treysti afar vel. Í eitt skipti eftir
leiklistartíma fékk ég far hjá honum heim, ég man ekki hvernig það kom til
samt. Hann spurði mig hvort ég ætti kærasta. Ég sagði nei og fannst
spurningin óþægileg frá fullorðnum manni sem ég þekkti ekki mikið. Hann
sagðist hafa haldið það þar sem ég væri svo fullorðinsleg. Svo lýsti hann því
hvað strákar ættu eftir að verða sjúkir í mig og væru það örugglega nú þegar
af því ég væri svo ,,þroskuð” og ,,alvarleg” og ,,erfið” og væri ,,playing hard to
get”. Það skiptir auðvitað engu máli en gerir aðstæður mögulega verri að
þegar ég var 15 ára leit ég úti fyrir að vera max 12.
14. Þetta er ekki saga sem gerist þar sem ég er starfandi leikkona. En
valdamisbeitingin þar sem ég var verðandi leikkona og hinir leikarar segir mér
að hún eigi heima hér.􀀀 Svo er ég líka handviss um að þetta séu þrjú andlit
sem aðrir hafa verið að tala um og allir vita af. Þetta er saga sem hefði getað
endað illa.􀀀 Ég var unglingur að passa hjá þjóðþekktum leikara sem ég hafði
kynnst þegar við lékum í ólíkum verkefnum í sama húsi, ég treysti honum og
leit upp til hans. Hann hafði oft gefið mér góð ráð hvað varðaði leiklistina og
gaukað að mér hugmyndum að efni fyrir leiklistarskóla prufurnar. Eitt kvöldið
kom hann heim og tveir kollegar hans með honum, allir mjög drukknir. Ég, að
vanda, hóf að pakka saman tölvunni minni og skóladótinu. Einn þeirra spurði
þá ,,Hva, þarftu að fara strax?” Ég sagðist þurfa að vakna snemma í skólann
daginn eftir og að ég ætlaði bara að drífa mig. Á meðan ég pakkaði saman
fylgdust þeir allir með mér, löbbuðu á eftir mér og suðuðu um að ég myndi
stoppa lengur, nóttin væri nú ung. Ég held það hafi orðið mér til happs hvað
þeir voru drukknir og því svifaseinir og ég var farin áður en þeir gátu tekið
hlutina lengra. En ég hef aldrei andað léttar en þegar ég komst út úr húsinu
og út í bíl. Þar sat ég svo í dágóða stund og reyndi að gera upp við mig hvort
ég þorði aftur inn að sækja krakkana, ég treysti þeim ekki til að hugsa um þau.
15. “Ætlið þið að láta einu konuna á setti starta keðjusöginni?” sagði maðurinn í
propsdeildinni. Ég var í frábæru crew’i sem samanstóð einungis af körlum
fyrir utan leikkonur og sminkur sem voru samt ekki hluti af day to day
operations. Við vorum basically fjögur eða fimm, leikstjóri, handritshöfundur
og leikari og tökumaður. Algjört dream team þar sem mikil virðing réði
ríkjum. Svo þurftum við að nota keðjusög en hún stóð á sér. Hafandi unnið í
garðyrkju frá 14 ára aldri og meðhöndlað alls kyns tryllitæki þá bauð ég mig
fram til að skoða málið. Enginn kommentaði á það og ég fann að mér fannst
æði að þetta væri loksins orðið að sjálfsögðum hlut. Að ég konan stæði þarna
og athugaði með innsogið á vélinni í friði. En svo kom
propsarinn/leikmyndahönnuðurinn, gamall (og virtur) maður og eyðilagði allt.
Ég kýldi hann í öxlina.
16. Þegar ég byrjaði að vinna í kvikmyndum var mér bókstaflega hent út í djúpu
laugina með því að gerast aðstoðarleikstjóri hjá gamalreyndum leikstjóra sem
hafði orð á sér fyrir að manupulera og niðurlægja fólk af báðum kynjum. Ég
fékk oft athugasemdir frá karlkyns starfsfélögum sem höfðu áhyggjur af því
að hann myndi algerlega brjóta mig niður vegna þess að ég væri ung og
reynslulítil kona. Ég hef oft hugsað um það- en þessi leikstjóri kom í raun fram
við mig af miklu meiri virðingu en þessir samstarfsmenn sem gerðu ráð fyrir
að ég myndi brotna vegna þessa leikstjóra. Þeir treystu mér ekki vegna þess
að ég var stelpa. 􀀀En það breytir því ekki að ég – í styrkleika mínum og því að
standa mig vel – tók þátt í því að hjálpa þessum leikstjóra við að ná fram vilja
sínum- og niðurlægja og fara yfir mörk annarra. 􀀀Ég vann með honum í fleiri
verkefnum- og gagnrýndi oftar sem á leið og setti spurningamerki við aðferðir
hans. Hann hætti þá allt í einu að muna hvað ég hét og kallaði mig ýmist “X”
eða “hvað þú nú heitir aftur”.􀀀 Þetta notaði hann óspart á fólk til að setja það
niður. Fyrsta verkefni mitt með honum að aðstoða við ljósmyndaverkefni fyrir
tískutímarit sem átti að sýna ungar stelpur á leið í sund. Sixtís stemmning. Ég
átti að finna módel – en ljósmyndarinn var með nokkrar þegar valdar og bæði
hann og leikstjórinn vildu hafa þær yngri og yngri og yngri. Hreinar meyjar.
Lofað var að ekkert ætti að sýna.􀀀 Ljósmyndarinn var líka hugmyndasmiður
og mér varð flökurt þegar þeir félagarnir göntuðust með verkefnið- og hvað
mætti og mætti ekki. Mitt hlutverk var að fá stelpurnar til að treysta þessu
verkefni og stjórna framkvæmdinni. 􀀀Þegar á hólminn var komið vildi
leikstjórinn að þær sýndu meira. Og olli þeim vanlíðan og óöryggi. Ég reyndi
að stoppa hann en hann var í ham. Sminkan, búningamanneskjan reyndu líka
að stoppa hann. Ljósmyndarinn tók þátt í þessu með leikstjóranum.􀀀 Seinna
komu upp deilur milli ljósmyndarans og leikstjórans um réttindamál varðandi
hugmyndina – og ég var kölluð í réttarsal til að bera vitni. 􀀀Þá kom í ljós að
ljósmyndarinn var orðinn sjálfskipaður vörður stelpnanna- sem höfðu
upplifað sig áreittar. Seinna hitti ég þá þar sem þeir voru orðnir bestu vinir
aftur – saman hlæjandi á kennderíi. 􀀀Ég hef svo oft hugsað um þetta – hvað
maður var magnvana í þessum aðstæðum og hvers vegna ég tók yfirhöfuð
þátt í þessu verkefni. 􀀀Jú, leikstjórinn setti þetta upp sem próf fyrir mig í
hvort ég hefði nógu sterk bein til að vinna með honum í komandi stóru
kvikmyndaverkefni. Ég hugsa mjög oft til stelpnanna sem nú eru fullorðnar
konur og hvernig þær hafa unnið úr þessu. Hvort það sé mitt að biðjast
fyrirgefningar. Mig langar það- en er ég þá ekki að taka að mér skömmina?
Hvar liggur ábyrgðin? Hver á að bera skömmina? 􀀀Eina þessara kvenna hef ég
hitt og við ræddum þetta og hún upplifði þetta sannarlega sem grófa áreitni
og það var erfitt yfir hana að vinna úr þessari upplifun.
17. Þegar ég var 21 árs lenti ég á spjalli við frægan leikara sem er rúmlega 20
árum eldri en ég. Á þessum tíma var hann að vinna fyrir pabba minn. Ég rakst
á hann á bar og á skömmum tíma fór hann að reyna að fá mig með sér á
skrifstofu út í bæ til að stunda kynlíf, ég skil ekki alveg hvers vegna samtalið
fór á þessa braut þar sem ég leit á þennan mann sem vinnufélaga pabba
míns. Ég afþakkaði ósmekklegt boðið og þá gargaði hann á mig að það væri
fullt af smápíkum sem biðu í röðum eftir honum. Ég pældi stundum í því
hvernig það væri að vera kona og leika á móti honum því svona atvik eru
oftast ekkert einsdæmi fyrir svona týpur.
18. Mér finnst þetta erfitt. Treysti mér ekki enn til þess að deila því alvarlegasta
en hér kemur ein lítil til að byrja á. Líklegast kynferðislegt áreiti en má líka
taka til greina að ég var bara 16-17 ára.􀀀 Ég var 16 ára að leika í barnasýningu
í Þjóðleikhúsinu þegar ég fór að fá persónuleg skilaboð frá leikara (c.a. 20
árum eldri en ég) sem innihéldu spurningar á borð við “hvað ég væri að
gera?” “Að hann væri í baði að hugsa til mín” og “hvort kærastinn minn kynni
ekki örugglega að vera góður við mig”. Fékk líka að heyra að við værum svo
sexí í búningunum okkar og fleira.􀀀 Ég lét engan sem skipti máli vita af þessu.
#meetoo
19. Veturinn 2010 var ég að aðstoða bekkjarsystur mína við tökur á stuttmynd
eftir hana. Ég var á setti alla tökudagana, aðstoðaði við catering og lék í einni
senu. Sú sena var þess eðlis að ég lék móður sem grét við leiði sonar síns. Ég
gaf mig alla í senuna, you name it það var tilfiningaundirbúningur aldarinnar
fyrir þessa litlu senu! Leikstjóri myndarinar var einn þekktasti leikari landsins,
svokallað óskabarn þjóðarinnar. Bekkjasystir mín skrifaði og lék
aðalhlutverkið í stuttmyndinni og var mótleikari hennar annar mjög þekktur
leikari. 􀀀Ég talaði lítið við mótleikara bekkjarsystur minnar. Ég var mjög feimin
við hann og leikstjórann og lét lítið fyrir mér fara. Í eitt skipti missti
bekkjarsystir mín stjórn á skapi sínu og lét mig heyra það fyrir framan crewið.
Hún átti erfitt með að sjá eitthvað og ég var fyrir. Þótti mótleikara hennar
þetta hinn argasti dónaskapur og bað hann hana vinsamlegast um að koma
ekki svona fram við mig. Ég þakkaði honum fyrir þetta og voru samskipti
okkar ekki meiri í tökunum. Eftir þetta var ég viss um að hann væri ágætis
manneskja.􀀀 Nokkrum dögum eftir að tökum lauk addaði hann mér á fb. Ég
var mjög hissa en samþykkti vinabeiðnina. Sama kvöld hringdi hann í mig,
sem hann átti eftir að gera næstu kvöld í þeim tilgangi að klæmast við mig. Ég
þorði ekki að vera dónaleg við hann, hann var nú frægur leikari og gæti tekið
ferilinn minn í bakaríið….􀀀Hann sagði við mig hluti eins og ,,ég tek eftir því að
á myndinni frá 2009 á fb ertu með miklu stærri brjóst en núna. Af hverju er
það?‘‘ sem og að tjá mér um það að hann vildi panta fyrir mig leigubíl svo að
við gætum sofið saman. Hann kom með grófar lýsingar á því hvernig hann
ætlaði að fullnægja mér og sagði í sífellu að hann sæi það alveg að ég væri
mikið fyrir kynlíf. Ég bjó til allar afsakanir í bókinni þar sem ég þorði ekki að
neita honum blákalt.􀀀 Eina nótt rétt fyrir jól vaknaði ég við símhringingu frá
honum þar sem hann sagði mér að hann væri að fara að senda leigubíl eftir
mér. Hann hætti ekki að suða fyrr enn ég náði að koma honum í skilning um
það að ég væri ekki að fara að skilja dóttur mína eina heima um miðja nótt.
Þá loks komst hann loks í skilning um að ég hefði ekki áhuga á því að sofa hjá
honum og voru símhringingarnar ekki fleiri eftir það.
20. Ég hef verið heppin og tekist að halda ýmsu frá mér, meira af glópaláni en
kænsku, en öll þessi umræða hefur fengið mig til að hugsa um eitt og annað
atvik frá unglingsárunum sem ekki olli sárum á sálinni en var samt, eftir á að
hyggja bara alls ekki í lagi. Stundum er maður bara svo hissa á því sem aðrir
virðast líta á sem sjálfsagða hegðun að maður veit varla hvað maður á að
hugsa.􀀀 Að því sögðu er ég þó svo óendanlega þakklát yfir því að þetta átak
fer nú í gegnum alla þjóðfélagshópa (er í nettu áfalli yfir því sem konur segja
hér inni og ekki síst þingkonurnar, nógu erfitt og vanþakklátt starf er það nú).
Ef hugarfarið er virkilega svona hjá þessum meirihluta karla þá þarf að
uppræta það og endurmennta í anda kínversku menningarbyltingarinnar (nei
kannski ekki alveg 😉 ) 􀀀Ég sjálf sigldi og sigli enn blessunarlega örugg í gegnum
atvinnumennsku á sviði í tónlist aðallega. EN, þegar farið var yfir mín mörk,
sem gestsöngvara á fyrsta ári í húsi sem var valið besta óperuhús Þýskaland í
mörg ár í röð, þá sagði ég frá því. Atvikin voru í sjálfu sér saklaus, en þetta var
heit sena í upphafi Rigoletto, flett af mér kjólnum og allt það, í mjög fínu
korsetti undir, ekkert mál. Mjög glæsileg sena út af fyrir sig. En í lokin á
mótsöngvarinn að þrífa mig til sín og kyssa mig á hálsinn, svona bakvið eyrað
bara. Hann var með ámálað skegg og eftir hverja sýningu var það komið á
nýjan stað, niður á brjóst og kinn og leitaði á munn. Ég sagði honum á
endanum í miðri senu að ef hann hætti þessu ekki myndi ég slá hann
utanundir. Þegar samningum lauk fór ég upp á skrifstofu, sagðist ekki vilja að
neitt yrði gert, en ef aðrar kvartanir bærust þá væri gott að hafa minn
vitnsiburð. Auðvitað var svo söngkona í öðru hlutverki komin með hendur
hans upp eftir pilsinu og tunguna ofan í kok nokkru síðar og þá var hægt að
gera eitthvað í málunum og það var gert.
21. Ég var að leika í íslenskri bíómynd úti á landi. Ég fór á þeim forsendum að
þetta væri sena þar sem ég væri “stelpa á bar” sem aðalleikarinn (kk) átti að
flörta við mig og aðra stelpu og senan átti svo að enda uppi á hótelherbergi
hjá honum. Það stóð ekkert um neitt kynferðislegt nema það að ég átti að
byrja að klæða mig úr fötunum og svo átti bara að cutta. En þegar við vorum
komin upp á hótelherbergið, stakk aðalleikarinn uppá því að við værum með
alvöru kampavín í senunni og leikstjórinn sagði bara já, og crewið (sem er fólk
sem er búið að vinna í bransanum lengi) stoppaði þetta ekki. Ég drekk ekki
þannig ég fékk mér ekkert en leikarinn og stelpan sem var með okkur voru
orðin full. Mér leið eins og ég væri að leika í klámmynd. Þetta fór frá því að
vera sena þar sem við áttum að byrja að klæða okkur úr fötunum, yfir í það að
vera sena þar sem við vorum í sleik við þennan mann (sem lyktaði eins og
spíri) og senan var orðin að kynlífsenu sem var ekki einusinni leikin. 􀀀Ég var
svo varnarlaus, þar sem leikstjórinn (kk) samþykkti þetta allt. Ég vildi ekki vera
stelpan sem öskraði stopp því ég hélt að þetta væri kannski bara eðlilegt. Ég
sá samt nokkrum dögum seinna þegar ég talaði við foreldra mína að það er
ekkert eðlilegt við þetta.
22. „Ég ræð aldrei stelpur. Þær fara alltaf að grenja“ sagði fyrrverandi kennari
minn úr Kvikmyndaskólanum við mig þegar ég var 25 ára, nýútskrifuð að
sækja um vinnu.
Mig langar bara ađ segja það hér að eftir ad hafa lesið allt hér fór ég ad rifja
upp atburði sem hentu mig þar sem 3 leikarar komu vid sögu á einn eða
annan hátt, saga af áreitni, valdbeitingu og útskúfun.􀀀 Ég fylltist fyrst kjarki en
svo lamandi ótta eftir að hafa skrifađ söguna því ég óttaðist ađ hún yrði rakin
til mín, og ég óttaðist að styggja vinsælu strákana. Að ég myndi upplifa meira
diss og skömm fyrir ađ segja frá. Ég hætti viđ ađ deila.􀀀 Ótti eins og minn er
ástæðan fyrir því ađ þetta hefur viðgengist allt of lengi. 􀀀Kjarkur eins og ykkar
er hinsvegar ástæðan fyrir að ég þarf ekki að óttast mikið lengur.
23. Leikhús. Generalprufa. Ég er enn í búning og þýðandi sýningar kemur til mín,
faðmar mig, hrósar mér hversu vel ég hafi staðið mig og fari fallega með
texta. Segir mér svo hversu falleg ég sé. Endar á að halda við hnakkann á mér
og troða tungunni á sér upp í mig og taka þar nokkra hringi áður en ég get ýtt
honum frá mér. Ég segi engum í uppsetningunni frá. Nokkrum árum seinna
minnist ég á þetta við samleikkonu og þá segir hún: Ó, gerði hann þetta líka
við þig? Við hlæjum að þessu þá. Í dag vildi ég óska að ég hefði heyrt í „litlu
Mér“ innra með mér sem sagði mér að öskra á manninn: „Stopp! Hættu
þessu! Þetta er rangt!“ En ég „stóra Ég“ var að reyna að vera fullorðin eins og
mér hafði verið kennt; halda kjafti og vera sæt. Takk elsku ungu hugrökku
stelpur fyrir að hafa haft hátt og hjálpað mér þannig að leyfa kjarna mínum að
tala.
24. Það sem ég tel mig heppna að hafa “bara” lent í kynferðislegu áreiti innan
bransans, aldrei ofbeldi. Ég virðist vera ein af fáum sem er einhverskonar
brengluð undartekning frá ofbeldi. 􀀀Ein saga, sem mig rámar í að hafað heyrt
oftar en einu sinni, situr sérstaklega föst í mér:􀀀Leikstjóri leikstýrir senu sem
gerist inní svefnherbergi, uppi í rúmi. Tvær stelpur eru naktar/hálfnaktar í
rúminu að fara með einhvern díalóg og leikstjórinn, sem er karlmaður,
ákveður að afklæða sig sjálfur og vippa sér uppí til þeirra. 􀀀Þetta var
skólaverkefni og stingur það mig að einhversstaðar lærist þessi hegðun, ekki
endilega frá kennara en mögulega úr kennsluefni. (stelpur, ef þið eruð hér
inni, endalaus styrkur og ást ❤)􀀀 Ein minning frá mínum eigin skólaárum situr
einnig fast í mér því hún var eiginlega upphafið af því að èg skynjaði
valdastöður í bransanum; ég var kona og ekkert meir:􀀀 Kennari að kenna
bekknum einhver basic handritaskrif og framleiðslutrikk og endar á að segja
“svo selja brjóst. Alltaf skrifa inn brjóst.”
25. Ég ætla að leyfa mér að láta flakka eina sögu. Ég var í löngu tökuferli sem
krafðist þess að við vorum lengi að heiman. Við gistum öll saman á hóteli eins
og gerist svo oft. 􀀀Einn daginn er einn af aðalleikurunum (kk) með óvenju
mikið smink sem svo þurfti að þvo af fyrir næstu senu. En það var svo
heppilegt að við vorum að skjóta nánast í innkeyrslu hótelsins og þar aðauki
að bíða eftir sólsetri svo ég hafði nægan tíma. Svo ég ákvað að senda hann
bara inn á sitt herbergi í sturtu. Sömuleiðis tók hann búninginn sinn með sem
hann átti að fara í og koma svo til mín í rútuna að fá nýtt smink. 􀀀En svo
mætir hann ekki, svo ég fæ upplýsingar um að hann vilji að ég komi og græji
hann uppá herbergi. 􀀀Kanski ágætt að bæta við að þessi ágæti maður var
búinn að vera frekar mislyndur allt ferlið og fljótur að láta það bitna á mér og
búningum ef illa stóð á honum. 􀀀Svo ég var alveg sannfærð um að hann væri í
vandræðum með að ná af sér sminkinu og ég bjó mig því undir að hann tæki
trylling á mig. Með það í huga bað ég aðstoðarleikstjórann að koma með mér
og gaf líka í skyn að mér þætti frekar skrítið að fara upp á herbergi til fólks ef
ég hefði fullbúna aðstöðu tilbúna fyrir utan. 􀀀Þegar upp kom var kappinn ekki
í búning eða í neinum vandræðum með sminkið. Hann var aftur á móti á
nærbuxunum einum klæða, búinn að dimma ljósin, draga fyrir og kveikja á
tónlist. 􀀀…varð svo augljóslega mjög vandræðalegur þegar hann sá
aðstoðarleikstjórann. 􀀀Fyrst hljó ég að þessu og reyndi að dusta af mér. En
mikið djöfull fannst mér brotið á mér jafnvel þótt ekkert hafi gerst. 􀀀Það sem
eftir var af tökutímabilinu “feikaði” ég mig hressa í kringum hann og þurfti
augljóslega að halda áfram að vera svo gott sem ofan í honum, svona einsog
starf sminku er. Sömuleiðis að passa alltaf a halda öllum hressum. 􀀀Ég hef líka
upplifað franskan leikstjóra sem ég þurfti að flýa á setti (og gat þarafleiðandi
ekki sinnt starfi mínu almennilega) vegna þess hversu óviðeigandi hann var í
orðum og þukli. 􀀀Ég hef líka fengið að heyra að ég sé crew hóra …og það frá
manni sem ég var að hitta. 􀀀Þetta eru bara pínu brot úr bransanum. 􀀀Ég
upplifði alvarleg brot sem barn og unglingur sem gerir mig kanski viðkvæmari,
ég veit það ekki.
26. Ég var átján ára í inntökuprófi leiklistarskólans og komin í 16 manna úrtakið,
rosalega glöð og stolt yfir að vera komin svona langt. Ég er sett í
setningaspuna með einum af strákunum sem var mun eldri en ég, og er í dag
mikilsvirtur í bransanum. Við fengum tíma til að undirbúa okkur svo við
setjum senuna og æfðum þetta í einhver skipti. Svo þegar á hólminn er
komið, sýnum við. Nema að hann breytir öllu og gerist klámfenginn og káfar á
mér og kyssir mig. Mér fannst þetta ógeðslegt og hálf fraus en stoppaði þetta
ekki og sagði ekki frá, “varð” að halda andliti því þetta voru jú inntökuprófin
og kannski væri ég bara tepra og fengi bágt fyrir að kjafta frá. Ég fór alveg í
rusl við þetta. Hann komst auðvitað inn í skólann en ekki ég.
27. Ég verð að viðurkenna það að mér hefur fundist ofboðslega erfitt að vera ung
kona. Kannski er ég bara voðalega áhrifagjörn og verri í að fylgja eigin
sannfæringu en ég vildi trúa. Þetta er ekki bein áreitni en ég vildi bara aðeins
tala um upplifun mína að því að vera ung kona í bransanum af því ég hef haft
gott af því að heyra frá öðrum. 􀀀Ég man á mínu fyrsta leiklistarnámskeiði í
LAMDA áður en BA námið mitt byrjaði þá ödduðum við krakkarnir hvor öðru á
facebook til að geta hist og hangið saman í kringum tíma. Svo mæti ég næsta
dag og þá voru krakkarnir að tala um myndir úr myndatökum sem ég hafði
gert á síðunni minni og meintu voða vel, en það var fyrir framan kennarann.
Svo byrjar tímann og við erum að gera einhverjar hryggæfingar og þá aðar
kennarinn upp að mér og hreytir út úr sér að ef ég hætti ekki þessu
presentationalism þá verði aldrei neitt varið í mig sem leikkonu. Ég skildi
ekkert hvaðan þetta kom því ég var bara að einbeita mér að mænunni minni,
en mér brá svo við þetta og ofboðslega áhrifagjörn 18 ára ég sem var nú
mætt í minn fyrsta tíma að reyna að verða góð í því sem ég vildi vera góð í,
grafalvarleg að vera nú tekin alvara, kaupi ég bara laus föt fyrir námið, hætti
að mála mig, borða meira en ég vil svo ég virðist ekki eitthvað fyrirsætuleg og
tek bara að mér KK hlutverk í hvert sinn sem við megum velja eigin persónur.
Samt koma samnemendur upp að mér og segja við mig “Allt sem þú gerir er
svo kynferðislegt. Röddin þín, hreyfingar, það skiptir ekki máli hvað þú tekur
að þér, allt verður um kynlíf!” Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið og þetta
hefur gert mig svo meðvitaða og látið mér líða voðalega fangelsuð út af því
hvernig konur eru túlkaðar og skynjaðar á sviði. Einnig margir kennarar sem
hafa haft mjög neikvæð áhrif, allt of mikið af einmitt þessum
hræðsluaðferðum sem herpir leikarann, og túlkar allt sem stelpurnar gera á
sviði sem kynferðislegt eða boring, sofa hjá nemendum í ofanábót. Þannig hér
var ég að reyna að sanna fyrir einhverjum kennurum og samnemendum að ég
væri alvöru leikkona með því að reyna að hafna eigin rödd og líkama út af
endalausum kommentum, en svo útskrifast maður inn í heim typecasting þar
sem einu hlutverkin fyrir ungar konur eru sæta stelpan, krúttlega stelpan og
kynbomban, og ef maður vill leika og hafa umboðsmann verður maður að
fylgja reglunum. Helmingurinn af prufunum sem ég mæti í þó ég hafni mörgu
er ég beðin um að vera meira sexí töku frá töku, eða prufan er óvænt
stefnumót og varla rætt um verkefnið, eða meðleikarar grípa í píkuna í
eftirpartíinu sekúndum eftir að þeir voru að segja þér frá
brúðkaupsundirbúningnum þeirra. Ég get svo svarið það, ef það væri ekki fyrir
listakonur sem ég dáist að og oft heppin að vinna með að skapa sér sín eigin
tækifæri væri ég orðin geðbiluð.
28. Ég hef lent í því hjá tveimur kollegum mínum að þeir vildu ríða mér að mér
forspurðri. Skiptin voru þrjú. Fyrsta sinni var það þegar ég vann sem skrifta
hjá sjónvarpinu undir stjórn annars þeirra og var það á fyrsta vinnudegi
mínum í vinnunni, og farið var norður á land. Hann var þó svo fullur að ég gat
varist. Svo var einnig um seinna skiptið. Síðan fór sá að býsnast um að biðja
ætti JBH afsökunar, hér á bókinni, þá minnti ég hann á að hann sjálfur hefði
aldrei beðið mig afsökunar. Hann setti mig á blokk, eins og hann hefur gert
við flesta aðra. Síðan er það annar kollegi sem óð inn á herbergið mitt á hóteli
árið 2000, augafullur og ég sjálf vel við skál. Hann linnti ekki látum þótt ég
berðist á móti og sagði illskufullt glaðhlakkandi þegar hann kom typpinu inn í
píkuna: „Nú er ég búin að ríða þér“. En ég hélt áfram að berjast á móti og að
endingu hætti hann. Þá lét hann út úr sér setningu sem mér fannst
meinfyndin: „Af hverju læturðu svona? Þær standa í röðum í Reykjavík til að
fá að sjúga hann á mér“. Honum til afbötunar hló hann við sjálfur þegar ég
benti honum á hvað hann léti út úr sér. Þessi náungi baðst aldrei afsökunar og
er enn reiður út í mig.
29. Mig langar til að koma hér að einni sögu sem varðar launamál okkar kvenna. Í
þeim efnum þurfa kvenlistamenn að vera á varðbergi ekki síður en konur í
öðrum starfsstéttum. Venjan er nefnilega sú eða allavegana þykir það nokkuð
eðlilegt í því karlaþjóðfélagi sem við lifum í að körlum finnist þeir hafi tilkall til
hærri launa og fríðinda en kvenmenn,- fyrir sömu störf. 􀀀Það heitir ofbeldi
þegar misbeiting valds er viðhaft, á hvorn veginn sem er. Þegar misnotkun
valdaójafnvægis er viðhaft og nýtt sér í hag heitir það ofbeldi, andlegt ofbeldi.
Að strákar hygli að strákum, karlar hygla að körlum þarf að benda á og tala
um, HÁTT!􀀀 Jæja, stutt dæmisaga. Ég taldi mig alltaf afskaplega heppna að
starfa innan stéttar þar sem sömu laun voru fyrir sömu vinnu, innan
leikhúsanna. Þar var viðhöfð sú regla að sýningarlaun fóru eftir stærð
hlutverks. Stórt, meðal eða lítið hlutverk og laun eftir því. Ekki var teljandi
munur á milli en þó nokkur. Þessi regla þótti eðlieg og sjálfsögð innan
stofnana og í leikhópum áður fyrr. Svo var eitt sinn að ég var beðin um að
taka að mér tvö meðalstór-stór hlutverk í sýningu þar sem strákahópur hafði
tekið sig saman og höfðu stofnað leikhóp fyrir tæpum 20 árum síðan. Ég var
það ómeðvituð gagnvart hættum kynjahrokans að mér datt ekki annað í hug
en að ég fengi þau laun sem mér bar samkvæmt venju. En nei sú var ekki
raunin þegar strákarnir fengu að leika sér fyrir utan settan rammann. Við
undirskrift samnings sátum við þrjú í búingaherbergi framkvæmdarstjóri, ég
og annar leikari, karlleikari. Sá var með hlutverk í sýningunni sem taldist til
lítils hlutverks. Framkvæmdastóri nefnir við mig upphæðina sem ég fengi fyrir
sýningu og spyr hvort ég sé ekki sátt…leikhópurinn sé nú ekki svo stöndugur
o.sv.fr. Ég spyr hann og samleikara minn hvort þetta séu ekki þau laun sem
séu í gangi í sýningunni og báðir fullvissa mig um að svo sé. Nú þá undirrita ég
samninginn og lék mín hlutverk glöð og sátt við mitt hlutskipti. Svo gerist það
mörgum árum síðar að þessi sami karlleikari sem hafði stutt
framkvæmdastórann í því að fullvissa mig um að mín laun væru samkvæmt
því sem gengi innan sýningar hittir mig á skemmtun. Hann var vel við skál og
vill endilega tala við mig um mál sem hafði legið honum á hjarta og angrað
hann í meira en áratug. Hann sá svo hræðilega mikið eftir því að hafa logið að
mér! Hann táraðist og sagðist hafa tekið þátt í leiknum strákanna að borga
stelpunum helmingi lægri laun en þeim sjálfum!!! Mér krossbrá og varð illt.
Mér varð flökurt. Hann bað mig um að fyrirgefa sér að hafa tekið þátt í þessu.
Ég hef alla tíð þurft að stóla á mínar kvenmannstekjur fyrir mig og börnin mín
þar sem ég var einstæð móðir. Líf einstæðrar móður á Íslandi sem hefur
ekkert öryggisnet í kringum sig er vægast sagt hart… Í rauninni ekkert annað
en lífróður alla daga. Ég sagðist fyrirgefa en ekki gleyma. Gert er gert og ég
var beitt órétti í erfiðri lífsbáráttu minni. Þannig er með marga. Rétt skal vera
rétt! Höfum hátt og látum misrétti ekki líðast á nokkurn hátt. Ofbeldi er
ofbeldi og höfum hátt!
30. 25 ára og nýútskrifuð. Samstarfsmaður sem er eldri en foreldrar hennar.
Óviðeigandi athugsemdir um útlit og einstaka líkamhluta hennar. Augnaráð,
strokur og nautnahljóð. Heldur áfram allan samstarfstímann. Nokkrum árum
síðar liggja leiðir saman á frumsýningu í öðru leikhúsi og frumsýningarpartý
þar á eftir. Ballið byrjar að nýju. Áfengi haft um hönd og ákefð mannsins mikil.
Athugasemdum um útlit konunnar rignir yfir hana og maðurinn bókstaflega
hangir í henni og hann grátbiður hana um að sofa hjá sér. Eltir hana heim og
hún þarf í orðsins fyllstu merkingu að hrista hann af sér með aðstoð vinkonu
sinnar. Fékk vinkonu sína til að gista hjá sér því hún þorði ekki að vera ein.
31. Nokkur atriði úr íslensku leikhúsi í gegnum árin.􀀀* Tæknimaðurinn sem
kemur aftan að mér seinnipart dags á skrifstofugangi, grípur um bæði brjóst
mín og klípur fast. 􀀀* Tónlistarmaðurinn sem ég mæti á leið á salernið á bar
eftir sýningu, tekur um höfuð mér og rekur tunguna upp í mig.􀀀* Leikarinn
sem fer að leggja það í vana sinn að laumast aftan að mér baksviðs á vissum
stöðum í sýningunni og nudda mig og strjúka. Saklaust, en við sífelldar
endurtekningar fór að verða óþægilegt. Eitt skiptið fóru hendur hans
innanklæða á mjög svo viðkvæman stað, ég fraus og gat ekkert gert stödd rétt
utan við leiksvið þar sem róleg sena var í gangi.􀀀* Yfirmaðurinn, eldri en faðir
minn, sem þrábiður mig á samkomu á vegum leikhússins að fara í sleik við sig.
“Gerðu það, bara einu sinni.”
– Yfirmaðurinn sem lagði það í vana sinn að grípa neðst í bolinn minn og
lyfta honum upp og bera þannig á mér magann. Ekkert kynferðislegt
þannig, en óþægilegt og niðurlægjandi.
􀀀- Leikarinn sem náði einhvernveginn alltaf að strjúka klofinu sínu létt
yfir bakið mitt á meðan ég var á eltiljósi þegar hann þurfti að komast
framhjá mér á hverri sýningu.􀀀
– Hljóðmaðurinn sem tók mynd af typpinu sínu í vinnunni eftir sýningu
og gekk síðan á milli starfsstúlkna í forsal og sýndi þeim.
32. Kem út af sviði í væng í blautum bol. Venjulega er enginn þarna og mín bíður
handklæði á stól en í þetta sinn er annar leikari með handklæðið í höndunum.
Ég fer úr bolnum og ætla að taka við handklæðinu þegar hann ýtir mér upp
við vegg og heldur mér þar meðan hann káfar á mér (mjög gróft, reynir að
komast með hendi niður buxur m.a.). Ég reyni að komast undan (í þögn samt
þar sem næsta sena er í gangi) en losna þegar einhver kemur loks í vænginn.
33. 15 ára í söngleik: slagsmálasena þar sem ég og eldri strákur veltumst um á
gólfinu (ásamt öllum hinum) og hann notar hvert tækifæri bæði til að káfa á
mér og er það harðhentur að ég er marin og blá allt æfinga- og
sýningartímabilið.
34. Saga sem eflaust margir hafa lent í og fundist jafnvel saklaust:
Frumsýning óperu, á undan fyrstu aríunni minni kysstumst við mótleikarinn
(kona að leika karl), allar æfingar hafa verið eðlilegar en á frumsýning “í gríni”
ákveður mótleikarinn að gera sleikinn að alvöru. Verandi uppi á sviði get ég
ekki slitið mig frá heldur þoli þetta og byrja svo að syngja, í hálfgerðu sjokki og
þakka bara fyrir að muna orðin. Ekki minn besti performance 􀎎 Við
vorum síðan í sama búningsklefa sem gerði þetta enn vandræðalegra. Atriðið
var síðan aldrei rætt.
35. Mín reynsla af sviðslistaheiminum er soldið eins og sturluð sálfræðitilraun.
Fyrir svona fimmtán árum datt ég inn í leikaradeild LHÍ á hátt sem mér er
eiginlega enn óskiljanlegur. Ég hafði enga reynslu af þessum geira og fann
fljótt að ég átti ekki heima í honum. Ég kláraði skólann samt—með herkjum
og á hnefanum—en fór svo beint í óskilt nám og vinn á því sviði núna.
Og svona skilaði tilraunin sér:
Ég fór inn í skólann svona þokkalega viss um eigið ágæti.
Allan tímann sem á náminu stóð fannst mér ég hins vegar einskis virði. Á
köflum var ég nærri því komin í þrot. Ég gekk fyrir aga og apatíu. Vaknaði og
hugsaði: Whatever, klára þetta bara, þola þennan dag. Það eru margir
mánuðir—ár jafnvel—sem ég bókstaflega man ekki eftir. Að hluta til stafaði
þetta ef því að ég var á rangri hillu, sem er erfitt, en að öðrum hluta til, og
ekki litlum, af því að sjálfsmynd mín var brotin á bak aftur. Og mér liggur við
að segja að það hafi verið gert með kerfisbundnum hætti. (Ég vil ekki skrifa
,,sjálfsmynd okkar” og tala fyrir hönd skólasystra minna, en ég veit að þetta á
við um fleiri konur sem voru þarna á sama tíma).
Það eru nokkur atvik og aðstæður frá þessum árum sem sitja ennþá í mér og
það tók mig tíma að ná aftur áttum. En eftir að náminu lauk fór mér samt
fljótlega að líða betur. Ég varð aftur ég. Ágæt bara og þokkalega örugg í sjálfri
mér.
Ég dvel ekki mikið við þennan tíma lengur en það eimir samt eftir af honum í
undirmeðvitundinni. Eins og þegar ég stend sjálfa mig að því að vera þakklát
fyrir að það sé komið fram við mig eins og fullgilda manneskju í núverandi
starfi. Sem er svona svipað og að vera þakklát fyrir að hafa ekki verið
nauðgað. Sturlað, með öðrum orðum.
En þegar það vill svo til að ég hugsa til baka fæ ég ennþá óbragð í munninn.
Ég finn svo til með öllum þessum ungu konum—okkur—sem fóru fullar af
trausti, vilja og metnaði inn í aðstæður sem voru þeim svo fjandsamlegar. Þar
sem þær lærðu að taka hlutgervingu sem hrósi og eigin mörkum sem
hindrunum og heigulskap. Þar sem þeim var kennt að það væri tvennt sem
drifi áfram mannleg samskipti og að þetta tvennt væri kynlíf og ofbeldi. Ég
þarf held ég ekki að útskýra hvernig heimur sem keyrir á kynlífi og ofbeldi
fúnkerar. Við vitum það allar.
Allan tímann sem ég var í leiklistarskólanum leið mér eins og mér hefði verið
dömpað í undarlegan hliðarveruleika þar sem giltu reglur sem ég kannaðist
ekki við og náði ekki utanum. Ég hef hvergi annars staðar, hvorki fyrr né síðar,
komist í kynni við annað eins. Og þetta var ekki tilviljun. Þarna voru kennarar
sem mér finnst hafa sturlaða sýn á heiminn, kyn og kynjahlutverk. Þessi
viðhorf seytluðu svo út í samskipti nemenda og settu okkur öll, stelpur og
stráka, í ömurleg hlutverk. Í námsmati vorum við stelpurnar svo oft
gagnrýndar fyrir að vera of óöruggar. Af því auðvitað.
Ég vil samt taka það fram að þetta átti ekki við um alla kennara—sumir voru
dásamlegir—og að það var líka margt fallegt sem gerðist í skólanum. En engu
að síður: Andrúmsloftið var eitrað og það var ekki bara útaf myglusvepp.
36. KK leikstjóri ráðlagði mér einu sinni (óumbeðinn) að vara mig á afbrýðissemi
annarra kvenleikstjóra og leikkvenna. Konur ættu nefnilega svo erfitt með
velgengni annarra kvenna, sérstaklega vinkvenna sinna.
Best væri þá að strjúka egóum leikkvenna taktískt eftir þörfum og til að halda
haus sem “sexí, lesbískt yfirvald” þyrfti ég að mantra að þær væru skotnar í
mér – og nota það!
Sami leikstjóri hafði áður predikað (í kennslustund í lhí) að það væru í
grunninn bara tvö drif eða höfuðásetningar persóna á sviði:
Kynlíf og Ofbeldi.
Kjarni allrar mannlegrar hegðunar, einu sönnu lyklarnir í greiningu.
Frábært úrval semsagt.
Og frábær sýn á mannlegt ástand yfirhöfuð.
Kaldhæðnislegast er þó kannski hvað téðum leikstjóra virðist oft mistakast að
aðgreina kynlíf og ofbeldi.
Ég pant allavega ekki vinna með þetta.
Freudarnir mega eiga sína takmarkandi forneskju og strjúka egóum hvors
annars meðan þeir deyja út.
37. Ég fékk hlutverk í leikhúsinu strax eftir útskrift úr LHÍ í barnasýningu. Ég var
örlítið feimin og langaði að standa mig vel og það var einn leikari þarna sem
gerði allt til þess að láta mér líða vel. Það sem ég kunni vel við þennan mann.
Hann sýndi mér allt húsið, kynnti mig fyrir starfsfólki og var bara alltaf svo
góður og skemmtilegur. Hann var einhver sem allir aðrir litu upp til og kunnu
vel við, “góði gæinn” sem öllum fannst æðislegt að vinna með. Við unnum
okkar skemmtilega æfingatímabil og frumsýndum og á sama tímabili
trúlofaðist ég kærastanum mínum. Það vissu allir að ég væri í sambandi og
bara mjög ástfangin. Það byrjar svo að gerast hægt og rólega á miðjum
sýningum að ég er í hópsenum þar sem ég finn að ég er klipinn í rassinn eða
það er verið að strjúka á mér rassinn. Ég vissi aldrei hver það var af
leikurunum, því við vorum þarna í kös, en þetta var svona “grín” sem maður
átti bara að taka þátt í. Svo gerist það á einni sýningunni að ég fer upp í
búningsherbergið mitt til að skipta um föt og mér til mikillar undrunar sé ég
“vin minn”, “góða gæinn” í herberginu minu, búinn að toga niður um sig
búninginn sinn, með typpið úti og segir við mig: ,,við höfum sjö mínutur”. Ég
lamaðist. Auðvitað langaði mig mest að spyrja hann, giftan manninn hvað
væri að honum, en ég fraus og sagði eitthvað jafn fáránlegt og “ég held að X
hafi séð þig koma hingað inn”. Svo greip ég búninginn minn og hljóp fram. Ég
gat ekki sagt manninum mínum frá þessu því hann hefði látið mig gera mál úr
þessu, og ég nýbyrjuð að vinna þarna, var skíthrædd um að vera stimpluð
“erfiða stelpan” eða jafnvel missa vinnuna, svo ég þagði. Mér fannst þessi nýji
vinur minn hafa brugðist mér svo svaðalega að ég forðaðist alla
“almenningsstaði” í leikhúsinu restina af leikárinu. Ég gat ekki skilið hvernig
hvernig við fórum frá því að vera “félagar” í að hann áætlaði að ég myndi vilja
sofa hjá honum. Þannig fór ég að efast um mína hegðun og hvernig ég væri
að koma fram því ég sagði aldrei neitt sem myndi gefa til kynna að mig
langaði að gera nokkuð með honum. Mér fannst ég ekki getað sagt öðrum
leikurum frá, því hann var vinsæli góði gæinn. Ég endaði á að kaupa mér tíma
hjá sálfræðingi, til að létta á mér. Það kostaði mig 200 þúsund krónur en fokk
that, mér fannst ég bregðast manninum mínum, konu góða gæjans (sem ég
kannaðist við) og hvað mest að hafa ekki getað staðið með sjálfri mér.
38. Leikkona í stórum söngleik að leika hóru í atriði þar sem stundum eru
hórurnar aðal en stundum meira svona bakvið og sjást eiginlega ekkert á
meðan tveir aðal syngja um það sem gerist næst. Káfið á KK mótleikurum var
aldrei meira en akkúrat þegar ekki sást almennilega til okkar fyrir leikmynd.
Og agressjónin var stundum ansi óþægileg, fyrst fyndin en óþægileg þegar
hún jókst. En auðvitað sögðum við ekkert.
39. Þegar ég hugsa til baka um öll þau skipti sem ég hef fengið orðið fyrir
einhverju óviðeigandi, verð ég að viðurkenna að ég veit ekki alltaf hvar
mörkin liggja.
Hvenær “flört” er orðið áreiti og hvað sé innan “leyfilegra” marka og hvað
ekki.
Er það áreiti þegar sviðsmenn raða sér upp inn á hliðarsviði þegar maður þarf
að afklæðast í hraðaskiptingu og getur ekki farið afsíðis ?
Er það áreiti þegar leikstjóri/danshöfundur biður/lætur þig gera eitthvað sem
þér líður illa með en hann veit það ekki því þú þorir ekki að segja neitt, því
einhverjum öðrum finnst þetta kannski ekkert mál ?
Er það áreiti þegar þú ert snert á óviðeigandi hátt í spuna en þú veist ekki fyrir
víst hvort það hafi verið óvart eða viljandi ?
Er það áreiti þegar sena eða ákvörðun breytist og þú ert beðin um að gera
eitthvað annað en það sem var lagt upp með ?
Ég held að það sé ansi margt innan okkar geira sem jaðrar við línuna og
spurning um að leikhúsin sem og aðrir vinnustaðir upplýsi allt sitt starfsfólk
um skýra stefnu í þessum málum sem og handhægar upplýsingar um hvaða
úrræði starfsmenn hafi lendi þeir í, eða verða vitni að, einhverskonar áreiti á
vinnustað.
En því miður hef ég líka verið áreitt, án nokkurs vafa, og það nokkuð oft.
Það er ekki auðvelt að díla við þær aðstæður þegar þú ert “teamplayer” í
hópverkefni, sem okkar vinna er nú oftast.
Það er ekki góð tilfinning að vera í þeirri stöðu að þurfa annað hvort að kyngja
stoltinu og halda bara áfram eins og ekkert hafi í skorist eða vera sú sem
sprengdi upp verkefnið.
Þetta er mjög þurft og nauðsynlegt átak, og það er áríðandi að koma
málunum í þann farveg að þér sem þolanda líði ekki eins og ábyrgðin sé hjá
þér.
Ást og friður <3
40. Dæmi um kvenfyrirlitningu. Ég var 25 ára að vinna sem aðstoðarkona
leikstjóra í bíómynd. Einn tökudaginn vantaði að keyra leikara til Reykjavíkur
og enginn bílstjóri var til taks. Leikstjórinn býður að ég keyri leikarann og
samþykki ég það. Þegar ég er að ganga inn á framleiðsluskrifstofuna heyri ég
leikarann, einn af þessum sem kallaðir eru ástsælir, hrópa að hann ætli ekki
að láta þessa smástelpu drepa sig á leiðinni til Reykjavíkur.
41. Mér líður eins og ég sé búin að halda niðrí mér andanum í allt of mörg ár. Er
við það að springa vegna þess varnaleysis, niðurlægingu og óréttlætis sem ég
upplifði við nám í Kvikmyndaskóla Íslands.
Mig langar að öskra á óréttlætið en þess í stað er ég þakklát fyrir að fá
tækifæri og hafa fundið vettvang #metoo til þess að leyfa gremjunni að
hamra á lyklaborðinu.
Ég stundaði nám við leiklist. Einn af okkar aðalkennurum þar var sjarmerandi
giftur fjölskyldufaðir með skemmtilega nærveru, þ.a.e ef þú varst í ,,hans liði’’
og hampaði hann þér þá við nemendur annara deilda svo að skólahlutverkin
streymdu að. EN ef þú varst ekki ,,í hans liði’’ þá talaði hann opinskárt um það
við aðra og bekkjarfélaga þína hversu lélegur leikari þú værir. Fyrstu þrjár
annirnar var ég á hvorugri hlið hans. Ég neitaði því að sleikja upp kennara til
þess að fá hlutverk, þau gat ég fengið sjálf út frá vinnusemi. Það merkilega var
að allir aðrir kennarar en X voru ánægðir með mína vinnu og voru einkunnir
mínar og hlutverk í verkefnum voru eftir því.
X var þannig kennari að hann braut niður leikara til þess að byggja þá upp og
,,móta‘‘ þá.
Hann mætti í nokkur skólaparty og var þá besti vinur allra, sem var undarlegt
þar sem nemendur höfðu grátið og skulfið undan honum fyrr um daginn. Í
partýum mútaði hinum og þessum til að gera kynferðislega hluti á kostnað
annarra og ætíð á þann hátt að það átti að koma þeim sem varð fyrir
áreitninni að óvöru. Hversu brenglað? Enginn þorði að segja nei við hann þar
sem allir unnu að því að vera í náðinni hjá X.
Síðar varð mér ljóst að X væri að misnota vald sitt með kynferðislegum hætti
gagnvart fleiri en einum kvenkyns nemanda skólans og ég sagði
bekkjarsystrum mínum frá því.
Eftir að hafa liðið illa í tímum hjá honum svo vikum skipti fór ein af
bekkjarsystrum mínum sem ég trúði fyrir þessu á fund með deildarforseta
leiklistadeildar til að segja frá hvað væri búið að vera í gangi. Deildarforsetinn
meðhöndlaði málið mjög ófagmannlega. Hún gekk á kennarann, sem var
einnig vinur hennar, í hvelli. Hann reyndi að koma sér út úr þessu, en var þó
alveg miður sín og málinu því sópað undir teppið. Skólinn gerði ekkert og efa
ég að deildarforsetinn hafi farið með málið á borð skólastjóra, deildaforsetinn
tjáði vinkonu minni samt að X hefði verið miður sín og farið að gráta…. Það
var ekki fundað með nemendum, ekkert. Kennarinn mætir í vinnu næsta dag
eins og ekkert hafi í skorist. Hann hins vegar tók málið í sínar hendur og setti
sér það markmið að gera líf mitt óbærilegt, hann var viss um að það hefði
verið ég sem klagaði hann. Í heila önn rakkaði hann mig niður fyrir framan
bekkinn. Lét hann mig sitja út í horni í tímum og sagði við mig fyrir framan
samnemendur að ég kynni ekki að leika og ætti að fara að vinna í Bónus.
Daginn áður en þekktur leikari átti að koma og leika á móti bekknum sendi
hann mér skilaboð á facebook þar sem hann tjáði mér að ég væri ekki nógu
góð til að taka þátt því ég hefði mætt svo illa í tíma. Ástæðan fyrir því var sú
að mér fannst orðið óbærilegt að sitja tímana hans auk þess sem ég þurfti að
leggjast inn á spítala vegna veikinda. En endingin var sú að ég mætti ekki leika
á móti þekkta leikaranum. Hann sagði einnig í bréfinu að þeir sem ég teldi að
væru vinir mínir í bekknum vildu ekkert með mig hafa, sem reyndist rangt.
Nemendurnir upp til hópa vissu af kynferðislegu valdmisbeitingunni sem hann
hafði gerst sekur um gagnvart ákveðnum kvenkyns nemendum skólans en
enginn vildi gera neitt, margir reyndu að réttlæta þetta, vildu hafa hlutina
góða og gera ekki neitt drama úr þessu. Bæði vegna þess hve vel hann væri
liðinn, sökum fjölskyldu hans og vegna þess að fólk hafði áhyggjur af því að
það gæti hugsanlega skemmt fyrir þeim ferilinn því bransinn væri svo lítill.
Eftir að hafa grátið, ekkað og legið á gólfinu, viss um að allt sem hann segði
væri satt sagði móðir mín mér að ég væri mun meiri jaxl en þetta! Ákvað ég í
framhaldinu að áframsenda bréfið til deildarforseta leiklistar sem sá strax að
þetta væri nú ekki alveg í lagi og sá til þess að ég fengi að leika á móti þekkta
leikaranum eins og samnemendur mínir. Hann X sá samt til þess að ég myndi
finna fyrir því að hafa talað við deildarforsetann og var með mjög ógnandi í
hegðun við mig. Ég reyndi samt sem áður að fá hann til þess að samþykkja
mig. Því í þessum bransa snúast öll framasporin út á að pota sér áfram, þó svo
að virðingin sé skilin eftir heima. Ég verð svo reið út í sjálfa mig þegar ég horfi
til baka, ég fór t.d og keypti pizzur fyrir allt crewið sem ég hafði engan vegin
efni á, því hann hafði jú líka fengið mig til að halda að allir hötuðu mig…
þvílíka valdataflið.
Hann X lét mig missa trúna á sjálfri mér og alltaf rembdist ég eins og rjúpan
við staurinn að fá hann til þess að samþykja mig. Það var ekki fyrr en að það
kom inn kennari, leikari, elskaður og dáður, sem byggði mig aftur upp að ég
fór að trúa því að ég væri einstaklingur sem ætti skilið að fá að taka pláss, því
X þaggaði alltaf niður í mér.
Ég elska þennan bransa jafn mikið og ég hata hann. Þessi risastóri fíll í okkar
listræna glerhúsi brýtur hjörtu og bramlar. Loftum út og búum til betri bransa.
Takk konur ❤
42. Vorum tvö ný í sjónvarpsþætti. Leikstjórinn hrósar nýja stráknum í bak og fyrir
“það er svo geggjað að hafa fengið þig inn í þáttinn, þú ert svo sjúklega
fyndinn” og segir við mig “þú ert algjör hóra”. Það var í gríni og ég veit alveg
að hann meinti ekkert með þessu en þetta er bara svo mikil skekkja að sjá
ekki neitt athugavert við það meira að segja þegar ég benti honum á það
seinna
43. Í einum listaskólanna starfar kennari sem sofið hefur hjá nemanda
deildarinnar. Þó hann hafi verið amk 20 árum eldri en hún, og að augljóst
valdamisvægi sé þarna þá var þetta einhvern vegin bara skemmtisaga sem
flestir sögðu “oj!” við og hlógu bara. Það lýsir því kannski hversu samdauna
maður verður ákveðinni menningu. En vandamálið er ekki beint að þetta hafi
gerst heldur þessi skrítna og kynæsta stemning sem hefur oft á tíðum
einkennt kennslu kk kennara deildarinnar. Það er erfitt að setja puttann á það
en þegar kvenleikaranemar eru í sífellu á nærfötum eða fáklæddar í nánast
hverri sýningu/opnum tímum, kk kennarar halda uppi þeirri mýtu að kynorka
sé ORKAN sem eigi að vinna með- óháð því hvort kvk nemum finnist sú orka
henta sinni persónusköpun, fituforómar og líkamssmánun á sér stað í
inntökuprófum og í kennslu, þá er farið að safnast ansi vel í sarpinn. Þetta er
ömurlegt andrúmsloft og hefur haft svo djúp áhrif á ótal marga kvk nemendur
sem þarna stunda nám. Þetta brýtur niður sjálfstraust og kennir okkur að það
eina sem skiptir máli í þessu starfi sé að vera kynþokkafull og falleg- til þess
að kk áhorfendur njóti þess að horfa!
44. Þegar ég var að setja mína fyrstu sýningu á svið á Íslandi þurfti ég að klæðast
búningi sem gerði mig stóra á alla kanta. Starfsmaður leikhússins sem ég bar
mikla virðingu fyrir og líkaði vel við var búinn að vera ofboðslega
almennilegur og hjálpsamur. Á einni æfingunni þegar búningurinn var
fullunninn og ég gat æft mig í honum, gekk hann framhjá mér, kleip í rassinn á
mér (þannig að ég fann höndina hans í gegnum búninginn sem var mjög
þéttur) og sagði: Mig hefur aldrei langað eins mikið í þig eins og núna. Síðan
gekk hann í burtu. Ég geri mér grein fyrir að þetta var bara grín af hans hálfu
en ég varð svo óörugg eftir á og fannst ég niðurlægð. Ég get illa greint á milli
þess hvað er létt og skemmtilegt grín og hvenær er farið yfir mörkin. Því við
vorum ekki að vinna saman í þessari sýningu, hann var hátt settur hjá
leikhúsinu sjálfu. Mér fannst ég alls ekki geta sagt við hann hey ekki gera
svona því þá væri ég að rugga bátnum (þannig leið mér þá) en ég óttaðist að
hann teldi sig mega koma svona fram við mig. Ég ræddi við mótleikonur mínar
því mér var svo brugðið og átti ekki von á þessu frá honum en þær sögðu
allar, æi þetta er bara búningurinn og hann er bara að grínast, hafðu ekki
áhyggjur. Ég geri mér grein fyrir því að við erum oft að gantast og grínast á
æfingum og stundum fer grínið í eitthvað kynferðislegt en þetta var bara ekki
þannig móment. Þarna leið mér illa.
45. Þegar ég var í leiklistarnámi vorum ég og bekkjarbróðir minn að gera
skipulagða spunasenu (við vorum búin að skapa og þróa persónurnar okkar
og vissum hverjar kringumstæðurnar í senunni yrðu.)
Senan snerist um par sem var að hittast eftir langan tíma án hvers annars.
Í miðri senunni erum við einhvernvegin ofan á rúmi og ég er með teppi ofan á
mér. Hann kemur undir teppið og byrjar að strjúka mér og snerta á mér
nærbuxurnar.
Mér fannst þetta alveg ótrúlega skrýtið og mjög óeðlilegt svo ég lét bæði
hann og kennarann vita.
Kennarinn og samnemendur mínir urðu vandræðalegir og málið varð ekki
tekið lengra. Bekkjarbróðir minn sagði að honum “þætti leitt að mér hefði
fundist þetta leiðinlegt” og sagði að hann hefði bara “verið svo mikið í
karakter” og “karakterinn hans hefði viljað þetta”.
Ég spurði hann til baka hvort hann myndi einhverntíman drepa samleikara
sína ef hann þyrfti að leika morðingja. Eða hvort hann myndi í alvöru ræna
banka ef hann væri að leika bankaræningja. Fannst þetta alveg jafn ruglað.
46. Ég byrjaði að vinna hjá Þjóðleikhúsinu þegar ég var 16 ára, þá við móttöku
gesta. Þetta var á þeim tíma mjög verndaður hópur (af okkar yfirmanni fyrst
og fremst.) Næstu ár fórum við stelpurnar að sækja frumsýningarpartý og
aðrar skemmtanir sem hafði þá ekki tíðkast áður. Það var þó fyrst þegar ég
upplifði mátt karlleikara að komast upp með hvað sem er, var þegar eitt
leikrit var sett upp hjá Þjóðleikhúsinu á smíðaverkstæðinu. Ég persónulega
varð ekki fyrir neinu áreiti, en heyrði karlleikara tala saman, bjór eftir vinnu í
“vina” hópi og einn af þeim nefndi að helsta ósk væri hjá viðkomandi að geta
tekið kvennmann viljandi eða með valdi í vissum myrkum rýmum í húsinu,
sem framkallaði hlátur hjá hinum sem sátu. Eftir það fór ég að heyra af því að
stelpurnar hefðu upplifað í gegnum tíðina annað hvort snertingar eða
“baktal”.
Seinna, tíminn leið, og ég hafði umsjón með starfsmönnum. Ég sá um
stelpurnar mínar sem voru að vinna hjá mér. Af eigin reynslu vissi ég um 1, 2
eða 3 aðila sem þurfti að varast, ég lagði þeim línurnar. En þegar ég fékk vott
af því að einn hefði gripið hana í rassinn eða brjóst, hvað þá að bjóða henni
að koma upp í herbergi – hikaði ég ekki við að fara framan og vísaði honum
út, og fyrir framan kollega sína, og fékk ég ekki mótmæli frá þeim, sem gerðist
of oft að mínu mati, sem var ekkert rætt frekar. (Svo best ég veit).
47. Ég gegni ábyrgðarstöðu innan kvikmyndabransans og hef hvorki tölur né
yfirlit um öll þau skipti sem mér hefur verið mismunað vegna kynferðis míns
gegnum tíðina.
Ég hef setið á fundum þar sem hugmyndir mínar hafa verið þaggaðar og svo
endurteknar af karlmanni skömmu síðar og þá á þær hlustað. Ég hef barist í
óteljandi skipti fyrir því að jafnhæf kona sé ráðin frekar en karl og sjaldan á
það hlustað. Ég hef endalaust reynt að hafa áhrif á að konur hafi ásýnd til
jafns við karla í þeim verkefnum sem ég hef tengst og baráttan oft verið erfið
og engu skilað, eins og að berja höfðinu við stein. Í kringum mig hefur
launaleynd viðgengist lengi og þegar ég hef samið við karlkyns yfirmenn hef
ég alltaf verið beðin um trúnað um þær tölur og ef ég hef brotið hann, hef ég
komist að því að það var vegna þess að ég var með lægri laun en karl í áþekku
starfi. Ég hef rekið mig á það að karlkynskollegar mínir hafa mun meira
svigrúm til orða, athafna og mistaka án þess að vera hengdir fyrir það en
konur. Ég hef ekki enga yfirsýn yfir hversu oft karlkyns yfirmaður í kringum
mig hefur misbeitt valdi sínu. Ég man ekkert hversu oft ég hef fengið
óviðeigandi, kynferðislegar og niðurlægjandi athugasemdir, sem eru
augljóslega bara til þess að slá mig út af laginu og halda mér á mínum stað, í
óörygginu. Magnið af þessu rugli er slíkt að ég hef enga yfirsýn lengur, en ég
lít samt á mig sem “heppna” því mér hefur ekki verið nauðgað eða ráðist á
mig líkamlega. En ansi oft andlega. Og það hefur áhrif til lengri tíma. En ég hef
líka átt marga, marga, samstarfsmenn sem hafa komið fram af sjálfsagðri
virðingu og réttlæti. Þeir eru bara ekki til umræðu akkúrat núna, þó þeir séu
nauðsynlegur hluti af umræðunni til framtíðar.
48. Áður en ég frumsýndi útskriftarverkið mitt fékk ég virtan leikstjóra sem ég leit
upp til, til að koma á rennsli. Hann talaði um að af því að verkið snerist um ást
og þráhyggju vantaði meiri alvöru í verkið. Hann stakk upp á að ein leikkonan
(sem er dansari) myndi niðurlægja sig gjörsamlega á sviðinu og fara úr öllum
fötunum. Þetta kom mér mjög á óvart, ég svaraði að ég teldi að það myndi
fara yfir hennar mörk, og hann sagði að hún myndi aldrei eiga séns í
dansheiminum ef hún gæti ekki verið nakin.
Þetta sýnir hans viðhorf gagnvart konum á sviði og konum í dansheiminum,
þó það sé ekki hægt að útiloka að hann hefði sagt það sama ef vinkona mín
væri karlkyns. Hann var í valdastöðu og þetta varð til þess að ég óttaðist að
verkið mitt yrði ömurlegt. Ég hinsvegar fylgdi innsæinu og breytti engu í
verkinu. Ég fattaði ekki alveg á þessum tíma að hans hugmynd kemur úr
rótgrónum úreltum hugmyndum í sviðslistum um hvernig á að framsetja konu
á sviði. Ég hugsa að þetta viðhorf hans sem ég lýsi hér á undan sé eitthvað
sem mjög margir karlkynsleikstjórar hafa að sé bara í lagi að krefjast af
konum. En svona viðhorf þarf að uppræta, og því er mikilvægt að segja frá
þessari sögu þó hún sé ekki um kynferðislegt ofbeldi eða áreiti. Ég vildi að
þessi umræða hefði verið tekin á meðan ég var í LHÍ. Ég meika ekki lengur
þessa kallamenningu og sjomlaorku sem útilokar konur og lætur kvenkyns
leikara/dansara í hlutverk og stöður sem eru ekki í lagi.
Vinkona mín hafði samband við mig útaf allri umræðunni hér og þakkaði mér
fyrir að hafa staðið við hennar mörk við mann sem er virtur í
sviðslistaheiminum. Það var í rauninni ekki fyrr en í fyrradag sem ég fattaði
hvað þetta var ekki í lagi að koma með svona hugmynd við mig, sem
augljóslega leit mikið upp til hans, og tala eins og þetta væri eina leiðin til að
bjarga útskriftarverkinu mínu. Vinkona mín setti þetta vel niður og hér kemur
hennar hlið á málinu, en við ákváðum saman að birta þetta: “Það sem var
ætlast til af mér var einhverskonar kvenlegt vitstol í sviðslistum/samtímadansi
þar sem kvenlíkaminn er endanlega búin að missa vitið sem er sýnt með því
að fara úr öllum fötunum í einhverju brjáluðu hormóna/tilfinningakasti. Á
þessum tíma hafði ég ónot fyrir að falla inní þetta hlutverk, en vissi ekki alveg
hvers vegna. Í dag hef ég mótað mér skoðun á því hvers vegna ég vil ekki að
horft sé á líkamann minn í þessu samhengi á sviði. Í þessu samhengi missi ég
vald yfir því hvernig áhorfendur horfa á líkamann minn og sú gjörð að
afklæðast í tilfinningaofsa er ódýr lausn á málum þar sem líkaminn verður
niðurlægður í þeim ásetningi að reyna að fá athygli stráks. Nei takk. Í dag
hefði staðan verið önnur, sérstaklega þar sem ég hef séð þessu hlutverki verið
snúið meðvitað við. En til þess að breyta þessu hlutverki innan
sviðslistaheimsins þurfum við þessa umræðu og valið til þess að segja nei, og
ef ekki, valið til þess að segja já og ef við viljum segja já, þá kæmi sér vel að
vera með einhverskonar vitneskju um það hvernig við getum haldið í valið, að
vera naktar, með tilfinningar, en samt sem áður með stjórn og vald. Bara til
þess að vita að það er líka val…Það sem sló mig mest út af laginu var að
viðbrögðin hans við því þegar þú sagðir honum að þú værir hrædd um að
þetta færi yfir mín mörk, var að þá ætti ég ekki séns í samtímadansheiminn.
Ef það er óumflýjanlegt að þurfa að vera nakin á sviði í dansheiminum, og ef
dansarinn kemst ekkert áfram vegna þess að hann áttar sig á því að hann
hefur val til þess að segja nei við því að koma nakin fram á sviði, þá þarf
eitthvað að endurskoða gildi þessarar senu.”
49. Ég hafði unnið í leikhúsinu í 5 ár þegar bekkjarbróðir minn fékk þar samning
(hann er ári yngri en ég). Framkvæmdastjórinn bauð honum strax að fara á
launataxta ofar en ég, af því hann væri FYRIRVINNA, sjálf var ég einstæð
móðir á þessum tíma. Þarna fattaði ég einhvernvegin svona alveg að ég sat
ekki við sama borð og samferðamenn mínir.
50. Einn kollegi fór óþægilega yfir mín mörk í teiti hjá sameiginlegum vini á sama
tíma og við vorum í æfingarferli þar sem traust skipti miklu máli. Mánudaginn
eftir atvikið segi ég við hann að hann hafi farið algjörlega yfir línuna, hann
segir sorry sorry ég var bara svo fullur, ég segist svo hafa sagt manninum
mínum frá þessu, þá kom á hann hik, svo sagði ég að svona framkoma væru
nú ástæða þess að ég hefði ítrekað reynt að komast hjá því að vinna með
honum, að yfirmaður okkar væri inni í málinu og nú væri grunur minn um
markaleysi hans staðfestur… þá panikeraði hann. Hringdi m.a. í manninn
minn og bað hann afsökunar… what? Það sem ég fattaði þarna var að honum
var nákvæmlega sama hvernig hann hafði farið yfir mín mörk, honum fannst
óþægilegt að maðurinn minn vissi þetta, en verst fannst honum ef hann gæti
misst vinnuna útaf þessu. Þá uppgötvaði ég að það eina sem svona fávitar
skilja er að missa vinnuna.
51. Ég var að semja fyrir mig fyrir kvikmynd, og vildi ná mér uppí eitthvað
“eðlilegt”. Þeir buðu mér hlægilega lágan taxta… Ég sagðist ætla að hringja í
karlmótleikara minn til að bera saman bækur okkar… þá allt í einu var ekkert
mál að semja við mig og ég fékk nær því sem ég bað um. ÆJhhh, ætli hann
hafi ekki verið með helmingi meira en ég. Ég hef aldrei viljað spyrja hann, ég
held ég yrði svo sár.
52. Ég var 28 ára. Við bjuggjum í sama húsi ásamt fleirum því þetta var sýning úti
á landi. Eitt kvöldið þegar ég er að fara í háttinn, kemur einn samstarfsfélagi
til mín, sem mér fannst alveg mjög fínn náungi. Ég sá nýtt blik í augunum
hans, stingandi. Hann vildi fá mig með sér í sturtu. Suðaði og suðaði, komdu,
gerðu það komdu með mér í sturtu. Verum saman allsber í sturtu. Hann var
töluvert eldri. Ég átti erfitt með svefn þessa nótt og fleiri. Læsti alltaf mínu
herbergi vel og vandlega því ég var hrædd um að hann kæmi inn. Í þessu
sömu sýningu varð ég líka fyrir ömurlegu einelti af hálfu leikara. Ég var svooo
reið að ég fór til sálfræðings á milli sýninga og gerði m.a. reiðivinnu sem
hjálpaði mér að komast í gegnum þetta tímabil.
53. Ég var 21 árs að vinna í Þjóðleikhúsinu sem dresser við mína fyrstu uppfærslu.
Mér fannst þessu heimur svo spennandi og skemmtilegur. Þetta var
barnaleikrit og í því var maður sem var svona 40 árum eldri en ég að leika afa.
Það var oft sem ég og þessi maður þurftum að bíða á milli sena í myrkrinu í
þröngum ranghalanum. Mér fannst hann alltaf standa aðeins of nálægt mér
en hugsaði ekki mikið meira út í það til að byrja með. Þegar lengra leið á
leikárið byrjaði hann að segja mér hvað ég væri falleg og hvað hann hefði
verið skotinn í mér á sínum yngri árum. Þetta fór að verða hans setning í hvert
skipti sem að sýningin var sýnd. Eftir smá tíma byrjaði hann að segja mér að
hann væri sko ekkert að reyna við mig að hann væri nú allt of gamall fyrir mig.
Ég var byrjuð að nefna þetta við samstarfsfólk mitt, að hann væri orðinn ansi
ágengur en allir hlógu bara og sögðu að hann væri svo gamall að hann mundi
aldrei reyna neitt. Eitt kvöldið eftir vinnu í leikhúsinu fórum við
samstarfsfólkið á Næsta bar eins og svo oft áður. Þar var hann fullur. Ég bað
fólkið sem ég var með að passa upp á mig og þau flissuðu bara og sögðu að ég
hefði ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Sá gamli kom nokkru sinnum yfir
kvöldið til að tala við mig og segja mér aftur hvað ég væri falleg og hvað hann
væri skotinn í mér. En hann væri sko ekkert að reyna við mig . Ég sagði skýrt
að ég hefði ekki nokkurn áhuga en þakkaði hrósið. Ég bað samstarfsfólk mitt
aftur um að hafa auga með honum og þau sögðust ætla gera það en trúðu
mér varla. En svo kom að því að hann kom til mín og rak tunguna rakleiðis
upp í mig og strauk mér um mjaðmirnar. Þarna fattaði fólkið sem ég var með
fyrst að mér mér var alvara og stóð ógn af. Ég einhvern veginn náði að koma
mér undan og segja honum að fara og þetta væri svo sannarlega ekki í boði
og fólkið í kringum mig hafði augun opin fyrir honum það sem eftir var. En
eftir þetta þurfti ég samt að vinna með honum hverja helgi báða dagana í
myrku þröngu göngunum í Þjóðleikhúsinu
54. Ég hef setið hér triggeruð, hljóð og lömuð af hræðslu að lesa innleggin sem
hingað hafa streymt síðustu sólahringa og sveiflast á milli þess að ákveða
hvort ég grafi þetta enn og aftur í óminni mínu eins og ekkert hafi gerst eða
hvort ég þori og þá hvort það sé yfirhöfuð einhver tilgangur með því að stiga
fram. Mun eitthvað breytast? Mun einhver trúa mér núna og vilja hlusta?
Karlmenn í valdastöðum í KVÍ fóru yfir öll leyfileg mörk í samskiptum við mig.
Ég hef kennt mér mikið um og tekið alla ábyrgðina og skömmina af þeim í
huga mínum því ég spilaði jú oft með. Ég sá það ekki þá en sé það í dag að
það var sjálfsbjargarviðleitni en með því að taka þátt einstaka sinnum keypti
ég mér pásu frá niðurrifsstarfsemi í tíma hjá ykkur, uppskar jafnvel mikið
hrós, velvild og hjálpsemi í einhvern tíma eftir það. Það brást ekki að þegar ég
var “erfið” og með uppreisn og neitaði að taka þátt eða setti einhver mörk
sjálfrar mín vegna eða reyndi að stoppa þetta þá varð allt námið svo miklu
erfiðara. Í ykkar augum var ég kynlífsleikfang, ljóskan sem káfa mátti á, þessi
sem senda mátti klúr skilaboð í tíma og ótíma innan sem utan skóla til að þið
gætuð svalað ykkar eigin fýsnum. Þið lituð á frelsið til að níðast á mér sem
sjálfsagðan hlut og vissuð upp á hár hvernig þið gætuð misnotað valdastöðu
ykkar gagnvart mér. Þið tókuð allt sem ég átti af sjálfsvirðingu í leiklistarnámi
mínu. Á aðeins tveimur árum breyttist ég úr því að vera sjálfstæð, glöð og
orkumikil félagsvera í þunglyndan triggeraðan geðsjúkling sem enga stjórn
hafði á skapi sínu í fullkomlega eðlilegum aðstæðum. Það sem mér þótti sýnu
verra var að þegar kjaftasaga um reynslu mína var afbökuð og ég reyndi að
koma í orð því sem ég hafði orðið fyrir þá snerust margir samnemendur mínir
gegn mér og sögðu mig vera að sofa mér leið á toppinn. Þá var ég baktöluð af
samnemendum mínum og litin hornauga sem crazy bitch og einangraðist bara
enn meir. Suma daga var einu velvildina og hlýjuna að finna frá ykkur, eins
sorglegt og það hljómar þá er ég oft reiðari við þá sem hefðu átt að vera
stuðningur og hjálp heldur en við ykkur sem brutuð mig markvisst niður.Undir
lok námsins fann ég ekki til neinnar lífsgleði og eftir útskrift fór ég ekki framúr
rúminu í sex mánuði. Enn í dag á ég erfitt með að treysta. En skömminni ætla
ég að skila, hún er ekki mín, hún er alfarið ykkar. #metoo #tjaldiðfellur
#höfumhátt
55. Hæst launuðu verkefnin í mínu fagi fara til karlmanna, ráðið í af karlmönnum.
Það hefur ekkert með hæfni að gera.
56. Þegar ég er ráðin af konum, hef ég aldrei orðið vör við mismunun.
57. Ég hef fengið 30-40% lægri laun en karlmaður fyrir sömu stöðu.
58. Ég hef enga tölu á því hversu oft hefur ekki verið hlustað á mínar hugmyndir,
en þegar karlmaður ber þær upp stuttu seinna, er á þær hlustað.
59. Ég hef margoft talað um mismunun vegna kyns míns, og man eftir
misalvarlegum jákvæðum og neikvæðum viðbrögðum, tvö skipti sem ég man
eftir brugðust karlmennirnir við með ógnandi framkomu, öskruðu á mig og
hentu húsgögnum í veggi.
60. Ég hef oft verið tekin sem ein af strákunum og hlustað á hvernig þessari og
hinni ætti að vera flengriðið, hvernig konur eru lélegar í samningum, hvernig
konur notfæra sér að vera kynverur, hvernig kærustunum er leyft að gera
þetta eða hitt. Samansafn af kommentum sem gera það mjög flókið fyrir mig,
ein af strákunum en samt kona, að vera hluti af hópnum sem ég er að vinna
með. Þá er sjaldnast vegið að mér beint, persónulega sem konu. Ég hef heyrt
valdamikla karlrembukarla hlæja að #metoo og segja að þessi umræða sé
komin langt yfir “eðlileg” mörk, þeir líta á sig sem feminista.
61. Var í tökum. Í fyrstu senunni sem við tökum vill leikstjórinn að ég sé á
brjóstahaldaranum (sem ég hafði spurt sérstaklega um áður hvort ég þyrfti að
gera og var svarað neitandi). Ég stend bara föst á því að það skipti ekki máli
fyrir innihald og framvindu þótt ég sé í bol frekar, hann hlær og gerir
athugasemd um hvað það sé skrýtið að finnast þetta vera issue en gúdderar
þetta loks. Næst er sena þar sem ég á að dansa við strák nema þegar við
erum að taka upp segir leikstjórinn mér að ég eigi að grænda strákinn (beygja
mig fram og dansa með rassinn í hann). Þetta strýkur mér öfugt því það stóð
ekki í handritinu og mér fannst það niðurlægjandi í þessum aðstæðum sem
við vorum að vinna með. Aftur sagði ég hey nei þetta er óþarfi fyrir
framvinduna, ég dansa bara venjulega. Ég fékk það í gegn en allir á tökustað
urðu svo innilega pirraðir á mér því ramminn var þá ekki jafn flottur.
Ramminn skiptir sem sagt meira máli heldur en hvernig konur eru málaðar
upp í kvikmyndum og sjónvarpi.
62. Annarskonar ofbeldi – kynbundið og niðurlægjandi. Fyrstu ríflega 4 árin í
starfi mínu hjá leikhúsinu gengu samskipti mín og yfirmannsins almennt mjög
vel og ég áleit okkur félaga, treysti honum og leitaði gjarnan til hans. Hann
gerði samt oft lítið úr mér og var ósanngjarn við mig, stal hugmyndum mínum
og lét mig sitja uppi með sumar af sínum vondu hugmyndum– en ég bara
sætti mig við það, vildi velja orrusturnar og á þessum tíma var hann ekki
hæstráðandi. Oft varð ég líka vitni að mjög ljótum samskiptum hans við aðra
og þá var ég gjarnan fegin að vera réttu megin við hann. Ég varð vör við
hvernig hann tók fólk fyrir og fylgdist beinlínis með honum hrekja fólk úr
starfi. Eins tók ég stundum þátt í ákveðnum hlutum án þess að vilja það – en
bara einhvernvegin gerði því að það var bara einhvernvegin einfaldara en að
reyna að leiðrétta hann. Hann átti (á?) það til að hreinlega hagræða
atburðarrás og samtölum sér í hag – og ég held að oftar en ekki hafi hann
trúað sjálfur að hann væri í raun og sann fórnarlamb í mikið af sínum
samskiptum. Eftir að hafa unnið í leikhúsinu í tæplega 5 ár þá reyndi ég aðeins
að spyrna við óhóflegri vinnu og þegar hann kallar mig fyrirvaralaust inn úr
sumarfríi án nokkurs aðdraganda þá svara ég í gríni hvort að ég þurfi að
mjaðmagrindarbrotna til að fá að vera í friði í fríinu. Við þetta svar mitt
umturnuðust samskipti okkar. Tveimur dögum síðar sátum við saman fund útí
bæ sem var verulega vandræðalegur fyrir alla viðstadda. Hann gerði sér far
um að láta eins og ég væri ekki á staðnum. Heilsaði mér ekki, snéri sjálfur
mjög óeðlilega við fundarborðið til að geta bókstaflega snúið í mig bakinu og
mér fannst hann raunverulega ekki heyra í mér. Eftir fundin var ég spurð
hvort ekki væri allt í lagi og ég bara réttlætti hegðun hans og ákvað að láta
þetta ekki á mig fá. Nema þetta var bara byrjunin. Næstu mánuðir voru
eiginlega óbærilegir í vinnu. Hann lét eins og ég væri ekki til – og þess á milli
var hann óvæginn og ómerkilegur við mig. Ég jafnvel heyrði hann tala illa um
mig og ég held að ég hafi átt að heyra það. Hann horfði í gegnum mig, heilsaði
mér ekki og gerði mér alveg ljóst að hann vildi ekki vinna með mér. Hann tók
mig reglulega fyrir á fundum með miklum æsingi, ranghvolfdi augunum í
hvert sinn er við mættumst á þröngum göngum hússins og varð almennt mjög
óútreiknanlegur í allri umgengni. Eðlilega tók ég framkomu hans nærri mér.
Ég var farin að draga mig verulega í hlé þegar leið á haustið og sporin í
vinnuna urðu sífellt þyngri. Ég var farin að efast um alla hluti og ekki síst sjálfa
mig og þegar leið á október var ég bara skugginn af sjálfri mér. Þá lendi ég í
slysi – og kemst ekki til vinnu í nokkrar vikur. Hann varð fyrst og fremst
pirraður, en hafði síðan ekki samband. Ég var að drepast úr samviskubiti yfir
því að komast ekki til vinnu og ég bara skildi ekki hvað var í gangi. Nokkrum
dögum eftir að ég sný aftur til vinnu kallar hann mig á fund til sín og segir að
ég sé orðin mjög áhugalaus. Hann var þá næstum ljúfur – þannig að ég þori að
segja honum að það sé ekki síst vegna þess að ég hreinlega væri farin að
óttast hann og mér fyndist hann vera mjög fjandsamlegur í minn garð. Hann
viðurkennir að hann hafi kannski mögulega verið aðeins ósanngjarn
einhvertíma og lofar að það lagist. Framkoma hans batnaði í nokkra daga – en
versnaði svo aftur verulega. Í byrjun febrúar var ég aftur komin á sama stað,
ekki yrt á mig svo dögum skiptir og öll samskipti mjög fjandsamleg – og mín
viðbrögð eins og áður. Kvíði, vanlíðan, þunglyndi og einbeitingaskortur og ég
fór að gera klaufaleg mistök og eiga erfitt með að klára verkefni. Ég sendi
honum línu þar sem ég segi að mér líði illa þegar svona sé komið fram við
mig. Enn versnaði viðmótið og viku síðar, sendi ég honum póst og afrit á
skrifstofustjórann þar sem ég segist bara ekki geta mætt til vinnu í þessu
ástandi, og biðla jafnframt til hans að samskipti okkar lagist svo við getum
unnið saman. Eins leita ég til stéttarfélagsins sem talar um gróft einelti og
virtust kannast vel við það frá þessum manni. Tveimur dögum síðar leggur
hann niður starfið mitt. Lítið stjórnsýslutrikk sem ég var svo vitlaus að segja
honum frá. Nokkrum dögum síðar ræður hann karl í starfið sem hann hafði
lengi haft augastað á og viljað í deildina mína. Líf mitt breyttist við þetta,
sjálfsmynd mín öll og mér líður eins og hann hafi rænt mig ærunni – svona
fyrir utan starfsferill minn er sennilega bara ónýtur. Ég skammast mín eða fæ
kvíðahnút í magann þegar ég hitti fyrrum vinnufélaga úr leikhúsinu. Ég veit
alveg að það er ekki endilega rökrétt – en hvað veit ég. Hann hefur öll völdin,
allt tengslanetið og getur hagað sögunni eins og hann vill. Ég veit líka að hann
gerir það, ég varð svo oft vitni að því. Ég veit líka að hann trúir sjálfur að hann
hafi ekki gert neitt rangt – það var ég sem bara varð allt í einu – eftir fimm ár –
að einverjum aumingja sem réði ekki við vinnuna sína.

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu