Mexíkósúpa

Fyrir 8 – 10
3-4 laukar
6 hvítlauksrif
smá vatn og látið malla saman í 10 mínútur

2 rauðar paprikur – gróft brytjaðar
1 chilli rautt – má sleppa
2 dósir niðursoðnir tómatar
2 dósir vatn – látið mig vita þegar þið finnið vatn á dósum!!!!    nei djók, notið dósina undan tómötunum
1 krukka salsasósa, styrkleiki eftir smekk

Öllu þessu er blandað saman og látið malla áfram í 10-15 mínútur

1 bolli BBQ sósa
Kjúklingur, smátt brytjaður og steiktur, má líka hafa tilbúna strimla – sumir hafa líka svínahakk eða nautahakk
1 bolli ferskt korínander, má líka hafa þurrkað

Þessu bætt saman við og látið malla áfram í 10 mínútur

Meðlæti – mjög nauðsynlegt :o)

Avocado, sýrður rjómi, rifinn ostur, doritos/nachos ( mulið út á – alveg bráðnauðsynlegt, gerir ótrúlega mikið :o)

Verði ykkur að góðu

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu