Saltfiskur frá Apótekinu

Saltfiskur fra ApotekinuTipphópurinn Til Sigurs hittist heima hjá Ástu B (hvar annarsstaðar) eitthvert skiptið og gladdist saman (ekki þó yfir góðum árangri í tippinu – engin ástæða hafði gefist til þess) og bar húsfreyjan með dyggri aðstoð Sigfríðar fram þennan líka dýrindis saltfiskrétt. Hann lifir svo í minningunni að mér fannst tilvalið að fá uppskriftina hjá Siffu og leyfi mér að setja hingað inn til varðveislu og aðgengis. Uppskriftin er frá veitingastaðnum Apótekinu og birtist í gömlu Gestgjafablaði.

Saltfiskur með kardimommusósu, kartöflumús og beikoni

  • 700 gr. vel útvatnaður saltfiskur
  • svartur pipar, nýmalaður
  • ólífuolía til steikingar
  • 8-12 vorlaukar

Kryddið saltfiskinn með nýmöluðum svörtum pipar. Steikið hann í ólífuolíu á pönnu þar til hann er orðinn fallega gulllitaður og setjið hann síðan inn í ofn í nokkrar mínútur þangað til hann er eldaður í gegn. Hreinsið vorlaukinn og blancherið hann (skellið í sjóðandi heitt vatn í smástunnd) í saltvatni í 40 sekúndur. Steikið hann síðan í svolitla stund á pönnu.

Kartöflur og beikon:

  • 4 stórar bökunarkartöflur
  • 8-9 sneiðar beikon
  • u.þ.b. 1 dl. rjómi
  • væn klípa af smjöri
  • salt og svartur pipar

Bakið kartöflurnar í ofni við 180°C í 1 klst. Saxið helminginn af beikokninu smátt og steikið það í potti þangað til það er orðið stökkt. Myljið beikonið. Takið kýðið af kartöflunum, maukið þær og setjið í pottinn með beikoninu. Setjið væna rjómaslettu og smjörklípu út í, hrærið þessu öllu vel saman og kryddið með salti og svörtum pipar.

Þurrkað beikon:

Takið 4 beikonsneiðar og leggið þær á smjörpappír. Bakið í ofni við 160°C þar til það er orðið stökkt. Þerrið á pappír.

Kardimommusósa:

  • 1 hvítlauksrif
  • 1 skalottulaukur
  • smjör til steikingar
  • 1 msk. kardimommur heilar,
  • 2 dl. hvítvín
  • 6 dl kjúklingasoð (eða soðið vatn og teningar)
  • 60 gr. ósaltað smjör, kalt

Saxið hvítlauk og skalottulauk smátt og svissið (steikið við háan hita í stuttan tíma án þess að brúnist) í potti. Setjið kardimommur og hvítvín útí, látið suðuna koma upp og sjóðið niður um 2/3. Bætið kjúklingasoðinu út í og sjóðið niður um helming. Hrærið að endingu köldu smjöri saman við.

Jarðsveppaolía:

  • u.þ.b. 1 dl grænmetisolía
  • 1 jarðsveppur (truffla)

Rífið eða saxið jarðsveppinn smátt. Setjið hann út í grænmetisolíu og örlítið salt saman við.

Raðið til dæmis á diskinn á eftirfarandi hátt:

Setjið kartöflumúsina á miðjan diskinn og saltfiskstykki þar ofaná. Hellið sósu í kring, stingið einni beikonsneið lóðrétt ofan í fiskinn og dreypið jarðsveppaolíu á diskinn meðfram matnum.

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu