Kjúklingasúpa að hætti Dollýar
Dollý dró fram dressið í kvöld og eldaði kjúlingasúpu. Ég veit að þú vilt fá uppskriftina og hún er til.
Innihald:
- kjúklingabringa skorin í frekar litla bita
- 1,0-1,5 ltr vatn í pott
- 1 væn gulrót sneidd
- brokkólí eins og þér finnst passa
- 1 hvítlauksgeiri smátt skorinn
- 1 kjúklingateningur frá knorr
- sesamolía
- sojasósa
Vatnið sett í pott og suðan látin koma upp. Gulrótin, spergilkál (brokkólí), hvítlaukurinn og teningurinn sett útí og látið sjóða í 5 mínútur. Kjúklingurinn settur útí. Látið sjóða í 5 mínútur og smakkað til með sesamolíu og sojasósu.
Ég bætti smá núðlum út í súpuna og þegar þær voru soðnar var súpan færð uppá disk og etin af svo góðri lyst að myndataka gleymdist.
Verði þér að góðu!