Tómatsúpa með smálúðubitum og piparrótarrjóma
Nú kann einhver að spyrja, hvers vegana að birta hér uppskrift að súpu með lúðubitum? Lúðuveiði er jú bönnuð! Í raun má nota hvaða fisk sem er í þessa súpu en höfundurinn, Rúnar Marvinsson, kallaði súpuna þetta og mér dettur ekki í hug að breyta heitinu þó lúðuveiði sé nú bönnuð.
Innihald:
- 400 gr. niðursoðnir tómatar fínsaxaðir
- 1 msk. smjör
- 1 stór laukur, saxaður
- 1 knippi steinselja, söxuð
- 1 tsk basilika
- 1 lítri vatn
- 1 tsk sjávarsalt
- svartur pipar úr kvörn
- 2 dl rjómi
- 1-2 tsk rifin piparrót
- 200 gr. smálúðuflök, roðfett og beinlaus
- 4 msk þeyttur rjómi
Mýkið laukinn í smjörinu. Blandið steinselju og basíliku saman við. Hellið vatninu útí og bætið tómötunum við. Sjóðið þetta við vægan hita í 1/2 klukkustund. Síið soðið og látið suðuna koma upp á því aftur. Bætið við salti og pipar að vild. Þeytið rjómann og hrærið piparróta saman við. Blandið rjómanum vel saman við soðið.
Skerið fiskinn í hæfilega bita og raðið þeim í skálar. Helli í þær sjóðandi súpunni. Setjið loks matskeið af þeyttum rjóma ofan á hverja skál. Með súpunni er gott að hafa gróft brauð.
- Ég sía aldrei súpuna og finnst eiginlega betra að hafa hana svona þykka. En hér ræður að sjálfsögðu smekkur hvers og eins.
- Fiskurinn er “soðinn” í súpunni í diskinum, það þarf því að hafa fiskinn mátulega þunnt skorinn þannig að þeim sem ekki vilja lítið soðinn fisk bregði ekki.