Tignarleg höfuðborg

Það er óhætt er að fullyrða að Malta sé spennandi áfangastaður fyrir Íslendinga í ferðahug. Undanfarin ár hefur verið boðið upp á marga möguleika í borgarreisum héðan en það færist sífellt í vöxt að Íslendingar skipuleggi sínar ferðir sjálfir og útvegi sér flug og gistingu í gegnum netið.Malta er lítil eyja syðst í Miðjarðarhafinu, skammt austan við strendur Afríku. Flatarmál eyjarinnar er aðeins 316 ferkílómetrar, sem er álíka og flatarmál Reykjanesskagans. Malta er lýðveldi og samanstendur af þremur eyjum, Möltu, sem er þeirra stærst, Gozo og Comino.Rúmlega 400.000 íbúar byggja eyjarnar og byggja þeir afkomu sína að miklu leyti á ferðamennsku, skipasmíðum og alls kyns vélaframleiðslu.

Sigling til Gozo og Comino

Fyrir þá sem vilja ekki vera þar sem allir aðrir eru er tilvalið að fara í siglingu til Gozo og Comino. Enn sem komið er hefur ferðamennskan ekki sett svip sinn að neinu ráði á eyjarnar en þó hafa heyrst kvartanir frá Maltverjum um að Gozo sé að verða fullmikill ferðamannabær. Höfuðborg Möltu, Valletta, er tignarleg. Hún er fyrsta skipulagða borg Evrópu en gamla höfuðborgin, Mdina sem einnig gengur undir nafninu “Hljóða borgin”, var flutt af miðri eyjunni niður til strandar á miðri sextándu öld. Var hún skipulögð og byggð af riddurum hinnar heilögu reglu St. Johns en hentugra þótti að verja eyjuna við ströndina en inni í landi þar sem höfuðborgin hafði verið til þess tíma.

Kristaltær sjór

Áhugafólk um köfun ætti að finna eitthvað við sitt hæfi á Möltu, þar er sjórinn víðast hvar kristaltær og er tilvalið fyrir byrjendur og lengra komna að reyna með sér í Miðjarðarhafinu, úti fyrir ströndum Möltu.Á Möltu, sem hlaut sjálfstæði frá Breska heimsveldinu árið 1964, er að finna fjöldann allan af enskuskólum enda er enska annað tveggja opinberra tungumála sem talað er á Möltu. Hitt er maltverska, sem er einhvers konar afbrigði af arabísku.

Verðlag á matvöru er afar hagstætt á Möltu og auðvelt er að finna ýmis klæði og skó sem eru á hagstæðara verðlagi en á Íslandi.

Fjölmargir góðir veitingastaðir eru á Möltu en sá sem heillaði mest í dvöl minni þar var Zest í St. Julians. Klassaveitingastaður þar sem austrið mætir vestrinu í matargerð. Þarna var hægt að fá rétti frá hinum ýmsu heimshlutum en kjúklingaréttir, kanína, sushi og núðlur voru einstaklega ljúffeng, sem og réttir þar sem önd var uppistaðan. Glæsilegar innréttingar spilltu ekki fyrir andrúmsloftinu og þjónustan var öll til fyrirmyndar.

Tilvalið er að taka flugið til London með annaðhvort Icelandair eða Icelandexpress og fljúga þaðan til Möltu t.d. með flugfélaginu Air Malta. Samanlagður flugtími í þessum ferðum er um 6 klukkustundir. www.airmalta.com www.visitmalta.com www.malteseislands.com www.alliancemalta.com/zest.htm

Greinin birtist í Morgunblaðinu 5. nóvember 2005
Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu