Dollý.is
Í dag hefur vefsíðan dolly.is ferð sína um alheimsnetið. Þrátt fyrir kreppu, verðbólgu, skerðingar og aðrar hörmungar hefur Dulfríður Jósefína (Dollý dulræna) ekki sett árar í bát heldur rær nú öllum árum að því að efla veg sinn og virðingu. Það verður að hennar mati aðeins gert með einum hætti – með því að snúa vörn í sókn!