Mynd á dag – janúar
- Gamla árið kvatt í faðmi foreldra og fjölskyldu.
- Ársins fyrsti dagur dottinn er í hús en Drottinn einn það veit, hvað árið ber í skauti. Nú strengi ég þess heit og helst er til þess fús að halda dag hvern áfram þessu rausi.
- Þegar skynsemin segir manni að vera inni þá þarf að leita að myndefni þar. Þessi jólakarl mun víkja á þrettándanum.
- Ég nældi mér í hálsbólgu og komst ekkert út í dag. En af svölunum mínum um miðjan daginn blasti þetta við. Get ekki sagt að þetta hafi verið skemmtileg heimsókn í garðinn!
- SamSam tónleikar í Smáranum. Aldeilis flottar stelpur í SamSam, vinkonur mínar og fósturdætur Hófí og Greta. Yndislegar báðar tvær og vaxandi tónlistarmenn sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni.
- Árið byrjaði hjá mér á veikindum, ekki skemmtilegt en sem betur fer þurfti ég þó ekki að leita á læknavaktina eins og svo margir aðrir. Sá hins vegar ástæðu til að smella mynd af húsinu þegar ég ók þar fram hjá í kvöld.
- Þrettándinn í dag og þessi gaur sem á útiljósi á svölum við Efstahjalla á leið til fjalla á ný.
- Gamli Vífilsstaðaspítalinn hýsir nú hjúkrunarheimilið Holtsbúð þar sem mamma mín dvelur nú um stundir. Það hafa verið ófá sporin sem ég hef farið þangað síðasta hálfa árið.
- Matarhópurinn í vinnunni bauð uppá saltfisk í pestó. Mjög gott hjá þeim þó mörgum hafi fundist að fiskurinn hefði mátt vera ögn meira soðinn!
- Í kvöld bauð ég pabba, Bubbu, Ingu Jónu, Ástu, Þorsteini Loga og Sigurði Inga í mat. Þau fengu kjöt í karrý og voru alsæl með máltíðina. Alltaf gaman að fá góða gesti.
- Karl Henrý Hákonarson frændi minn var með tónleika í Mosfellsbænum. Við mættum þar þrjár systurnar en í raun voru alltof fáir á tónleikunum því Karl Henry semur frábær lög. Við nutum okkar í botn systur og þökkum fyrir góða skemmtun.
- Heimboð til húsfrúr Guðríðar. Aldeilis ljómandi skemmtilegt mikið rætt og spjallað.
- Yndislegt veður og nýja vinnuvélin tekin í notkun. Þessi runni skartaði berum sem ég sá ekki þegar ég tók myndina.
- Fyllt paprika … alveg hreint ljómandi góð takk fyrir!
- Hér er komið hráefni í úrvals fiskrétt.
- Elsku mamma mín flaug á hausinn í vikunni og fékk þetta ógurlega glóðarauga. Hún er ósköp döpur yfir því að líta svona út og hálf slöpp eitthvað eftir þetta.
- Fyrirlestur um persónukjör, atkvæðavægi og þjóðaratkvæðagreiðslu í HÍ.
- Horft til suðvesturs úr Efstahjalla, Turninn og Smáralind skera útsýnið út á Reykjanes.
- Þórdís Ólöf hélt uppá 3ja ára afmælið sitt og Sigrún Birta kom með strætó úr Stykkishólmi til að samfagna með frænku sinni.
- Fimmmenningaklíkan hittist hjá Örnu í tilefni af 50 ára afmæli hennar. Aldrei höfum við verið fallegri stelpurnar.
- Jón Gnarr mætti á fund hjá Samfylkingarfélaginu í Kópavogi ásamt Heiðu Helgadóttur og Degi B. Eggertssyni. Þetta var mjög fróðlegur og áhugaverður fundur.
- Ber á runna
- Turninn í Kópavogi
- Boozt í hádeginu í vinnunni
- Listaverk fyrir utan Vífilsstaðaspítala
- Þessar komu í heimsókn fyrir leiksýninguna “Saga þjóðar” í Borgarleikhúsinu. Aldeilis skemmtileg sýning.
- Svandís stendur í ströngu í Skólagerði.
- Heilsusafi kreistur úr engiferi, lime, agúrku, epli og blandað með smá vatni. Ekki sem verst skal ég segja ykkur!
- Ég eldaði þennan dýrindis kjúklingarétt og held því áfram að hafa mynd á dag meira og minna matarmyndir!
- Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg?
- Kratarósin