Dýrðarinnar kjúklingasúpa

Ég skellti í eitt tilraunaeldhús í kvöld og það reyndist ekki af verri endanum og örugglega alveg bráðhollt. Það eina sem ég hafði gert áður en ég lagði af stað í tilraunaeldhúsið var að taka nokkrar kjúklingalundir út úr frysti, svo opnaði ég skápana hjá mér og úr varð þessi líka dýrðarinnar kjúklingasúpa.

Innihald:

  • kjúklingalundir (eða annað beinlaust kjúklingakjöt), skorið smátt
  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 2-3 hvítlauksrif, presuð
  • 1 sellerístöngull, skorinn í sneiðar
  • 2 kartöflur, flysjaðar og skornar smátt
  • 1 cm engifer (mætti vera aðeins meira) raspaður
  • 1 ds. kjúklingabaunir
  • 1 ds. brytjaðir tómatar með oregano og basil
  • 1 stk. kjúklingakraftur
  • 1-2 msk. olía til steikingar
  • 500 ml. vatn

Ég byrjaði að steikja laukinn í olíunni í þykkbotna potti, þvínæst setti ég kjúklinginn í pottinn og leyfði honum að malla smá stund. Þá setti ég selleríið, kartöflurnar, kjúklingabaunirnar (með soðinu), engifer, hvítlauk og tómatana í pottinn og lét suðuna koma upp. Þvínæst hellti ég vatni í pottinn, bætti við kjúklingakraftinum og lét malla í ca. 15-20 mínútur.

Smakkað til og ef súpan er ekki nógu bragðmikil þarf að bæta í hana kjúklingakrafti ef hún er of bragðmikil þarf að bæta í hana vatni.

Borið fram með góðu brauði!

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu