Þannig týnist tíminn

Þannig týnist tíminn Raggi Bjarna og Lay Low.
Lag og texti: Bjartmar Guðlaugsson.

Líkt og ástarljóð
sem enginn fékk að njóta,
eins og gulnað blað
sem geymir óræð orð,
eins og gömul hefð
sem búið er að brjóta,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.

Þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn
þó hann birtist við og við.

Líkt og sumarást
sem aldrei náði að blómstra,
líkt og tregatár sem geymir falleg bros,
þarna er gömul mynd
sem sýnir glaðar stundir,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.

Þannig týnist tíminn……

Líkt og mynd sem bjó
í vonarlandi þínu,
eins og æskuþrá
sem lifnar við og við,
býr þar sektarkennd
sem ennþá nær að særa,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.

Þannig týnist tíminn……

Líkt og ástarljóð
sem enginn fær að njóta,
endar sem gulnað blað
er geymir óræð orð,
eins og gamalt heit
sem búið er að brjóta,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu