Bráðhollur fiskur í ofni

Í kvöld tók ég skafið úr skápnum tilraunaeldhús. Af því það er mánudagur ákvað ég að prufa að gera eitthvað gott og bráðhollt úr fiski sem ég átti í frystinum og viti menn – þetta var svona líka asssgoti gott!

Í réttinn notaði ég:

  • Ýsu, roðlaus og beinlaus
  • Kartöflur, afhýddar og skornar í bita
  • Gulrætur, flysjaðar og skornar í bita
  • Púrrulauk, sneiddan í þunnar sneiðar
  • Ost (ég átti bara frosna sneið af brauðosti sem ég notaði)
  • Sítrónuolíu (smá slettu)
  • Sveppasósu úr pakka
  • Salt

Ég byrjaði á því að gera grænmetið klárt, raðaði því síðan í botninn á eldföstu móti og setti smávegis af sítrónuolíu yfir. Fiskinn skar ég í bita og lagði ofaná grænmetið. Þvínæst hrærði ég saman sveppasósu úr pakka og vatni og hellti yfir fiskinn í fatinu. Þar á eftir sáldraði ég osti sem ég hafði mulið niður beint úr frystinum yfir herlegheitin.

Ég setti álpappír yfir fatið (til að halda soðinu inni) og bakaði í 200°C ofni í ca. 20-25 mínútur.

Ég færði fiskinn og grænmetið uppá disk og hrærði síðan í soðinu sem var eftir í eldfasta mótinu. Við það þykknaði sósan/soðið og ég hellti því yfir fiskinn á diskinum mínum.

Geggjað!

ps. ég ætlaði að taka mynd af þessum huggulegheitum en græðgin bar mig ofurliði og ég var búin að gúffa þessu í mig áður en mér gafst ráðrúm til að draga fram myndavélina ;-).

Ertu sátt? Segðu frá Dollý á þinni síðu